|
Stundaskrá
| kl |
Mánudagur |
Þriðjudagur |
Miðvikudagur |
Fimmtudagur |
Föstudagur |
| 8:00 - 8:30 |
Rólegur leikur |
Rólegur leikur |
Rólegur leikur |
Rólegur leikur |
Rólegur leikur |
| 8:30 - 8:50 |
Morgunverður |
Morgunverður |
Morgunverður |
Morgunverður |
Morgunverður |
| 8:50 - 9:00 |
Sögustund |
Sögustund |
Sögustund |
Sögustund |
Sögustund |
| 9:00 - 10:00 |
Val/ |
Val/ |
Val/Íþróttir yngri |
Val/ |
Val/ |
|
|
Hópastarf BLÁR |
Hópastarf GRÆNN |
Hópastarf GULUR |
Hópastarf RAUÐUR |
Hópastarf GULUR |
| 10:00 - 11:00 |
Útivera |
Útivera/Tónlist ´98/´99 |
Útivera |
Útivera |
Útivera |
|
|
|
10:30-11:30 |
|
|
| 11:00 - 11:30 |
Samverustund Sr. Halldóra |
Samverustund |
Samverustund |
Samverustund |
Samverustund |
| 11:30 - 12:00 |
Hádegisverður |
Hádegisverður |
Hádegisverður |
Hádegisverður |
Hádegisverður |
| 12:00 - 13:00 |
Hvíld / hlustun |
Hvíld / hlustun |
Hvíld / hlustun |
Hvíld / hlustun |
Hvíld / hlustun |
| 13:00 - 14:00 |
Myndlist
|
Íþróttir eldri
12:45 - 14:00 |
Bókasafn
13:30 -14:20 |
Myndlist |
Gönguferð |
|
|
|
|
|
|
|
| 14:00 - 15:00
|
Útivera |
Útivera |
Útivera |
Útivera |
Útivera |
| 15:00 - 15:20 |
Samverustund |
Samverustund |
Samverustund |
Samverustund |
Samverustund |
| 15:20 - 15:45 |
Nónhressing |
Nónhressing |
Nónhressing |
Nónhressing |
Nónhressing |
| 15:45 - 16:00 |
Sögustund |
Sögustund |
Sögustund |
Sögustund |
Sögustund |
| 16:00 - 17:00 |
Val |
Val |
Val |
Val |
Val |
|
|
|
|
|
|
|
Um stundaskrána
Rólegur leikur
Við byrjum daginn á rólegum viðfangsefnum sem
börnin velja sjálf s.s. að lesa bækur, teikna,
púsla, perla og leira.
Morgunverður
Ef borðstjóri dagsins (eitt barn er borðstjóri
dagsins) er mættur hjálpar hann til við að undirbúa
morgunverð og leggja á borð. Einn borðstjóri
er tilnefndur úr barnahópnum daglega sem sér um
að leggja á borð, með aðstoð eftir þörfum.
Morgunverðurinn er mjög fjölbreyttur. Stundum er hafragrautur,
stundum jógúrt, morgunkorn eða ristað brauð
að ógleymdu lýsinu. Þegar hvert og eitt barn
hefur lokið við að borða gengur það frá
eftir sig, þvær sér um munnin, sest inn í
bókakrók og velur sér bók að skoða.
Sögustund
Í sögustund eftir morgunverð er farið yfir daginn,
hvaða dagur er í dag, hvernig er veðrið o.s.frv.
og lesin er eða sögð saga.
Val/hópastarf
Þá er komið að vali, eða hópastarfi.
Í vali velja börnin sér sjálf viðfangsefni
og leikfélaga. Þau hafa góðan tíma til
að skipuleggja og setja upp leik á eigin forsendum. Þau
læra að standa við val sitt og leiknum stjórna
þau sjálf. Í vali eru í boði margvísleg
viðfangsefni sem börnin velja hverju sinni. Í vali læra
börnin líka að þau geta ekki alltaf fengið
það sem þau vilja þegar þau vilja. Þannig
geta svæði sem hugur stóð til að velja verið
upptekin, þá þarf að gera gott úr því
og velja það næst besta. Val barnanna er skráð
daglega.
Börnunum er skipt niður
í fjóra aldursmiðaða hópa sem heita: Gulur,
Rauður, Grænn og Blár (sjá stundaskrá).
Allir fara í hópastarf einu sinni í viku nema Guli
hópur sem fer tvisvar. Í hópastarfi eru börnin
að störfum í sínum jafningjahópi með
sínum hópstjóra. Þar er verið að
kenna, þjálfa og æfa ýmsa færni barnanna.
Í hópastarfi er unnið er með margvísleg
viðfangsefni s.s. sköpun, tónlist, spil, vettvangsferðir,
markvissa málörvun, ritmálsörvun o.s.frv. Sami
kennari hefur sama hópinn allt skólaárið.
Útivera –fataklefinn
Markmiðin í fataklefanum eru að börnin verði
sjálfstæð, geti klætt sig úr og í
og velji hlífðarfatnað miðað við veður.
Börnin læra að hirða um fötin sín, auka
orðaforða sinn og líkamsvitund Börnin eru ekki öll
í einu í fataklefanum að klæða sig í
útifötin. Ef það er góður leikur í
gangi einhverstaðar er sjálfsagt að leyfa þeim
hópi að vera aðeins lengur inni og einnig er hægt
að fara fyrr út.
Eins og sjá má
í stundaskránni er útivera töluverður
hluti skólatímans. Útivera er hverjum holl. Þar
er hreint loft og nóg pláss. Úti veitum við
hreyfiþörfinni útrás. Úti gilda líka
aðrar reglur en inni. Þar má hafa eins hátt
og hver vill, hlaupa og hamast. Þar fer líka fram frjáls
leikur Aðstæður eru metnar hverju sinni varðandi lengd
útivistarinnar.
Tónlist
Skólinn hefur gert samning við Tónlistarskóla
Rangæinga. Tveir elstu árgangarnir fara í tónlistartíma
einu sinni í viku undir handleiðslu tónlistarkennara.
Þar er farið yfir undirstöðuþætti tónlistarinnar
og grunnurinn lagður að frekara tónlistarnámi
hjá börnunum.
Íþróttir
yngri
Einu sinni í viku fara yngstu árgangarnir í íþróttir
í íþróttasal Laugalandsskóla undir
handleiðslu leikskólakennara. Þar er farið í
ýmsa leiki og hreyfiþroskinn efldur á margvíslegan
máta. Þar er líf og fjör og nóg plássJ.
Íþróttafatnaður er ekki nauðsynlegur en
fötum er fækkað eins og þurfa þykir. Ekki
er farið í sturtu eftir íþróttir yngri
barna.
Samverustund
Skólinn er ekki deildarskiptur en börnunum er skipt eftir
aldri í sögustund og samverustundum að morgni og í
hvíld/hlustun. Samverustundirnar efla hópkennd og sjálfstæði.
Þar gerum við okkur margt til gamans. Við syngjum, dönsum,
æfum okkur í tjáningu og að koma fram á
annan hátt. Á mánudögum kemur séra
Halldóra Þorvarðardóttir til okkar og þá
eru samverustundirnar ekki tvískiptar. Það er alltaf
gaman hjá sr. Halldóru og með henni eflum við
kristilegt siðgæði okkar, syngjum og höfum gaman
saman.
Hádegisverður
Við erum svo heppin að fá alltaf tvíréttaðann,
góðan og hollan hádegisverð sem eldaður er
í mötuneyti Laugalandsskóla. Á meðan á
samverustund stendur hjálpar borðstjóri dagsins til
við að undirbúa hádegisverðinn. Mikil stærðfræðikennsla
fer fram þegar lagt er á borð með spurningum s.s.
: Hvað eru mörg börn við hvert borð? Hverja vantar?
Hvað þarf þá að leggja á borð
fyrir marga? Hversu marga diska þarf, glös o.s.frv.Borðstjóri
býður hinum börnunum að gjöra svo vel og þarf
þá að tilkynna hvað er í matinn. Í
matartímanum gefst góður tími til samræðna.
Þá æfum við okkur einnig í borðsiðum
og almennri kurteisi.Hvert barn gengur frá eftir sig og þvær
sér um munn og hendur. Við leggjum áherslu hollann
og fjölbreyttan mat og að matmálstímar séu
rólegar og notalegar samverustundir.
Hvíld
Eftir góðan og næringarríkan hádegisverð
er gott að hvíla sig í ró og næði.
Eldri börnin fara í hvíld í Leiklandi. Þar
er legið á dýnum með kodda og teppi ef vill á
meðan hlustað er á skemmtilega sögu. Yngri börnin
fara í hvíld í Hopplandi með sæng og
kodda enda sofna þau flest. Þar hafa þau snuð
sem það nota eða eru með uppáhalds bangsann
sinn. Kennarar liggja alltaf hjá börnunum og sjá
til þess að þar skapist friður og ró og hvíldin
verði öllum sem ánægjulegust. Eftir hvíldina
höfum við öll endurnýjað kraftana og erum tilbúin
að takast á við starf dagsins.
Íþróttir
eldri
Tveir elstu árgangarnir fara í íþróttir/íþróttaskóla
einu sinni í viku undir handleiðslu íþrótta-
og leikskólakennara ásamt yngstu árgöngum
Laugalandsskóla. Það er liður í samstarfi
skólastiganna. Þar eflum við hreyfiþroskann,
þolið, samvinnu í hóp o.fl.
Á vorin og haustin förum við í sund og æfum
sundtökin. Nauðsynlegur búnaður eru sund- og íþróttaföt
auk handklæðis.
Myndlist
Eftir hvíld er á þessum tíma boðið
upp á myndlist. Stundum eru í boði verkefni sem allir
geta tekið þátt í saman eða unnið er
í minni hópum. Gugga sér um myndlistina á
þessum tíma, enda með framhaldsmenntun í því
fagi.
Bókasafn
Sumir fara á bókasafnið í Laugalandsskóla
á þessum tíma, skoða bækur, fá
bækur lánaðar og skila þeim sem við höfum
haft að láni. Við höfum mjög greiðan aðgang
að bókasafninu og fáum að leggja inn óskir
ef það eru sérstakar bækur sem við viljum
að bókasafnið kaupi. Stundum eru grunnskólabörn
á bókasafninu um leið og við og þá
kynnumst við þeim betur.
Gönguferðir
Sumir fara í gönguferðir á þessum tíma.
Þar kynnumst við betur nærumhverfi leikskólans,
aukum þekkingu okkar á náttúrunni og lærum
að njóta hennar. Ef sauðburður er í Nefsholti
fáum við að kíkja á lömbin og stundum
höfum við verið svo heppin að sjá lamb fæðast.
Í Götu er fiskeldi og þangað höfum við
farið að skoða fiskana og svo höfum við fengið
að gefa þeim. Þegar hestarnir hennar Herdísar
eru komnir á hús er alltaf hægt að fara í
hesthúsið og skoða hestana, strjúka þeim
og gefa þeim tuggu. Annars er náttúran hér
óþrjótandi uppspretta leikja og skoðunar.
Samverustund
Eftir hressandi útivist förum við öll saman í
samverustund þar sem tekið er að fækka í
barnahópnum.
Hressing
Á meðan á samverustund stendur er hressingin undirbúin
með borðstjóra dagsins. Í hressingunni fáum
við oftast nýbakað brauð og álegg , mjólk
að drekka og stundum eitthvað ,,óvænt” á
eftir.
Sögustund
Eftir hressinguna er sögustund í bókakrók
og að því loknu val þar til skóladegi
líkur.
|