Hátíðir og hefðir

Í leikskólanum er lögð rækt við ýmsar þjóðlegar hefðir og hátíðir og höfum við okkar tyllidaga sem við höldum með ýmsu móti. Þeir eru:

Evrópskur tungumáladagur
Er haldinn að frumkvæði Evrópuráðs þann 26. semtember. Markmið hans er að vekja athygli á tungumálakunnáttu, halda á lofti fjölbreytileika tungumála og menningar í Evrópu og hvetja til símenntunar í tungumálum.Dagana á undan eru þemadagar þar sem við kynnum okkur erlend tungumál. Þeim líkur svo Evrópska tungumáladaginn með sameiginlegri samverustund.

Dagur íslenskrar tungu
Er haldinn hátíðlegur ár hvert á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember. Flytja börnin þá ljóð og vísur, gjarnan eftir Jónas í sameiginlegri samverustund.

Jólaball
Er haldið um miðjan desember. Þá flytja elstu börnin helgileik, sr. Halldóra er með jólahugvekju, svo syngjum við og dönsum í kringum jólatréð. Jólasveinar koma í heimsókn og færa börnunum smá glaðning. Við förum einnig á litlu jól og jólaball Laugalandsskóla þar sem foreldrar og systkini geta tekið þátt.

Þorrablót
Í janúar/febrúar er haldið þorrablót. Það er með hefðbundnu sniði; þorramatur á borðum, sungið og skemmtiatriði.

Bolludagur
Bollur borðaðar.

Sprengidagur
Saltkjöt og baunir í hádegismat.

Fjöruferð
Á vorin er farið í heimsókn í fjöruna við Stokkseyri með rútu. Foreldrum og systkinum er velkomið að koma með.

Söngstund á Lundi
Árlega í mars/apríl er farið í heimsókn á dvalarheimilið Lund og sungið fyrir heimilisfólkið þar. Við höfum farið í samfloti með Kvenfélaginu Einingu sem hefur séð um kaffiveitingar að söng okkar loknum.

Myndlistarsýning/vorhátíð
Í tengslum við Vor-og útskriftarhátíð leikskólans er haldin myndlistarsýning nemenda hér í leikskólanum.

Afmæli
Þegar börnin eiga afmæli útbúa þau sjálf sitt eigið afmælisboð. Þau baka hér í leikskólanum og bjóða félögum sínum í veislu. Allir syngja fyrir afmælisbarnið og kveikt er á kertum. Þannig gerum við daginn eftirminnilegan.





 
 

Leikskólinn Laugalandi, 851 Hella

s:4876633, leikskolinn@laugaland.is