|
|
Söngtextar
[
A - E ] [ F - J ] [ K - O
] [ P - T ] [ U - Ö ] [
Jólalög ]
|
Palli var einn í heiminum
(lag: Búkolla í Bankastræti)
Ég þekki lítinn labbakút,
sem langaði að stelast út.
Á litlu tánum læddist einn,
en langaði ekki að vekja neinn.
:,: Ha, ha, ha, trúðu mér,
Palli var einn í heimi hér:,:
Út á götu æddi hann,
og ekki nokkurn þar hann fann.
Suður í búð hann síðan gekk
og súkkulaðimola fékk.
:,: Ha, ha, ha, trúðu mér,
Palli var einn í heimi hér:,:
|
Ríðum heim til Hóla
Ríðum heim til Hóla.
Pabba kné er klárinn minn,
kistill mömmu fákur þinn.
Ríðum heim til Hóla.
Ríðum út að Ási.
Ef við höfum hraðann á,
háttum þar við skulum ná.
Ríðum út að Ási.
Ríðum heim að Hofi.
Senn er himni sólin af,
sigin ljós í vesturhaf.
Ríðum heim að Hofi.
Rjóminn
Mér þykir góður rjómi,
það besta sem ég fæ.
Þá kemur reyktur, steiktur lundi,
svo kemur loðið skott af hundi,
síðan vakna ég af værum blundi
-buxnalaus!!
(aðrar útgáfur enda reyndar á "-lystarlaus"
en börnunum þykir þessi skemmtilegri!)
|
Reykurinn
Við ýtum reyknum út
og við togum reykinn inn
og reykurinn fer upp um skorsteininn.
Syngjum glorí, glorí, hallelúja
og reykurinn fer upp um skorsteininn.
Skýin
Við skýin felum ekki sólina af illgirni
(klapp, klapp, klapp)
Við skýin erum bara að horfa á leiki mannanna
(klapp, klapp, klapp)
Við skýin sjáum ykkur hlaupa-oouuúúííh!
Í rokinu!
Klædd gulum, rauðum, grænum
og bláum regnfötum.
Eins og regnbogi meistarans,
regnbogi meistarans,
við skýin erum bara grá, bara
grá,
á morgun kemur sólin, hvað verður
um skýin þá?
|
|
Sjá, sjá!!
Sjá, sjá, svona geri ég!
Sjá, sjá, svona gerir þú!
Sjá, sjá, svona gerum við!
Hermikráka kemur!
Ég get klappað! (klapp, klapp, klapp)
Þú getur klappað! (klapp, klapp,
klapp)
Við getum klappað! (klapp, klapp,
klapp)
Hermikráka kemur!
(stappað, hoppað, hvíslað
o.s.frv.)
Sól úti, sól inni
Sól úti, sól inni,
sól í hjarta, sól í sinni.
Sól - bara sól!
|
Sumri hallar
Sumri hallar hausta fer,
heyri snjallir ýtar:
Hafa fjallahnjúkarnir,
húfur mjallahvítar.
Ég get verið þíðan þín
þegar allt er frosið,
því sólin hún er systir mín
sagði litla brosið.
Sungið í lok samverustunda:
Jæja krakkar, jæja krakkar,
takk fyrir í dag!
Gaman var að sjá ykkur
og gaman var að fá ykkur!
Jæja krakkar, jæja krakkar,
takk fyrir í dag!
|
Stóra brúin
Stóra brúin fer upp og niður,
upp og niður, upp og niður,
stóra brúin fer upp og niður,
allan daginn!
Bílarnir aka yfir brúna,
yfir brúna, yfir brúna.
Bílarnir aka yfir brúna,
allan daginn!
Skipin sigla undir brúna,
undir brúna, undir brúna.
Skipin sigla undir brúna,
allan daginn!
Flugvélar fljúga yfir brúna,
yfir brúna, yfir brúna.
Flugvélar fljúga yfir brúna,
allan daginn!
Fiskarnir synda undir brúna,
undir brúna, undir brúna.
Fiskarnir synda undir brúna,
allan daginn!
Fuglarnir fljúga yfir brúna,
yfir brúna, yfir brúna.
Fuglarnir fljúga yfir brúna,
allan daginn!
Börnin ganga yfir brúna,
yfir brúna, yfir brúna.
Börnin ganga yfir brúna,
allan daginn!
|
|
Strætó
Hjólin á strætó snúast hring, hring, hring,
hring, hring, hring,
hring, hring, hring!
Hjólin á strætó snúast hring,
hring, hring
- út um allan bæinn!
Hurðin á strætó opnast út og inn,
út og inn,
út og inn!
Hurðin á strætó opnast út
og inn
- út um allan bæinn!
Peningarnir í strætó segja klink, kling,
kling,
Fólkið í strætó segir bla, bla,
Börnin í strætó segja hí, hí,
Bílstjórinn í strætó segir uss, suss, suss,
Flautan í strætó segir bíb, bíb, bíb,
|
Sungið í upphafi samverustunda:
Halló krakkar, halló krakkar,
velkomin í dag!
Gaman er að sjá ykkur
og gaman er að fá ykkur!
Halló krakkar, halló krakkar,
velkomin í dag!
Þetta er fjörug músík,
svo öll dýrin fara að dansa.
Þau dansa fram á rauða nótt
og vilja ekki stansa.
Hjá gíröffum er sorg og sút,
það var svei mér ekki af engu,
því átta litlir gíraffar,
þeir illt í hálsinn fengu.
En nashyrningur læknir kom
með nefklemmur og tösku.
Og hann gaf öllum hálstöflur
og hóstasaft úr flösku.
Krókódíllinn stóri, hann fékk
kveisu hér um daginn.
Hann hafði étið apakött
sem illa þoldi maginn.
Svo var skinnið skorið upp,
það skelfing var að heyra.
Kvæðið langtum lengra er,
en ég lærði ekki meira
|
Trommulagið
"Jóna" spilar á trommuna,
spilar á trommu og við syngjum
öll með.
Góðan dag, góðan dag,
hvernig líður þér í dag?
Vonandi líður þér vel - jú-hú!
Og svo réttir hún trommuna
til "Sigga",
"Siggi" spilar og
við syngjum öll með.
Góðan dag, góðan…o.s.frv.
Tilfinningablús
Ég finn það ofan´í maga - ooohó!
Ég finn það fram í hendur -
ooohó!
Ég finn það niður´í fætur -
ooohó!
Ég finn það upp í höfuð - ooohó!
:,:Ég finn það hér og hér og hér og hér
og hér og hér og hér
hvað ég er glöð!
Hér inni´í mér!:,:
(reið, leið, svöng, þreytt
o.s.frv.)
|
|
Tröllin
Hérna koma nokkur risatröll-hó!hó!
Þau öskra svo að bergmálar um
fjöll-hó!hó!
Þau þramma yfir þúfurnar,
svo fljúga burtu dúfurnar,
en bak við ský er sólin hlý
í leyni.
Hún skín á tröll svo verða þau
að steini.
Tút, tút...
Tút, tút segir bíllinn minn,
ek ég inn í bílskúrinn,
Fingri styð á flautuna
og fætinum á bremsuna.
|
|
|
| |
|
|
|
|