|
|
Söngtextar
[
A - E ] [ F - J ] [ K - O ] [
P - T ] [ U - Ö ] [
Jólalög ]
|
Kátur er hann Kalli…
Kátur er hann Kalli minn,
kominn upp í bílinn sinn.
Eitthvað langt hann ætlar
sér,
út í heiminn sýnist mér.
Tra la la la la la, tra la
la la la la,
tra la la la la la la la.
Krumminn í hlíðinni
Krumminn í hlíðinni
hann fór að slá,
þá kom lóa lipurtá
og fór að raka ljá.
Hann gaf henni hnappa þrjá
og bannaði henni´að segja
frá
en hann spói spíssnefur
hann sagði frá,
prakkarinn sá.
Þó var ljáin ekki nema
hálft annað puntstrá.
Krummi krunkar úti
Krummi krunkar úti,
kallar á nafna sinn:
“Ég fann höfuð af hrúti,
hrygg og gæruskinn.”
:,: Komdu nú og kroppaðu með
mér,
krummi nafni minn :,:
|
Krumminn á skjánum
Krumminn á skjánum,
kallar hann inn:
“gef mér bita’af borði þínu,
bóndi minn!”
Bóndi svara býsna reiður:
“Burtu farðu, krummi leiður.
Líst mér að þér lítill heiður,
ljótur ertu’á tánum,
Krumminn á skjánum.”
Krummi snjóinn kafaði
Krummi snjóinn kafaði
kátur hló og sagði
að hún tófa ætlaði
einum lóga gemlingi.
Fuglinn í fjörunni
Fuglinn í fjörunni hann heitir
már,
silkibleik er húfan hans og
gult undir hár;
er sá fuglinn ekki smár,
bæði digur og fótahár,
á bakinu svartur á bringunni
grár,
bröltir hann oft í snörunni,
fuglinn í fjörunni.
|
Krummi svaf í klettagjá
Krummi svaf í klettagjá,
kaldri vetrarnóttu á,
:,: verður margt að meini,
:,:
fyrr en dagur fagur rann
freðið nefið dregur hann
:,: undan stórum steini. :,:
Á sér krummi ýfði stél ,
einnig brýndi gogginn vel,
:,: flaug úr fjallagjótum,
:,:
lítur yfir byggð og bú,
á bæjum fyrr en vakna hjú;
:,: veifar vængjum skjótum.
:,:
Sálaður á síðu lá
sauður feitur garði hjá
:,: fyrrum frár á velli. :,:
Krunk, krunk, nafnar, komið
hér,
krunk, krunk, því oss búin
er
:,: krás á köldu svelli. :,:
Kubbahús
Kubbahús við byggjum brátt,
báðum lófum smellum hátt.
Kubbum röðum sitt á hvað
(hvíslað) - Hver vill skemma
það?
BÚMM!!!
|
|
Krúsilíus
Kannastu við köttinn
minn?
Hann klókur er en besta skinn.
Hann er stærri en hestur
og stærri en hús.
Já, kötturinn minn heitir krús, krús,
krús.
Krúsilíus.
Hann er gulur og grænn
og blár
Galdraköttur í húð og hár.
Og ég veit hvað hann syngur
og víst er það satt
að Krúsilíus, hann á köflóttan
hatt.
Krúsilíus.
Krúsilíus
kynlegur er
og klórar oft í tærnar á mér.
Hann vill aldrei fisk
er með væl og pex
og segist bara vilja súkkulaðikex.
Krúsilíus
Og ekki nennir hann að
elta mýs
Því alla daga vill hann rjómaís.
hann er alltaf að stækka
en enginn það sér
Því Krúsilíus býr í
kollinum á mér.
Krúsilíus.
|
Klukkurím
Klukkan eitt
eta feitt.
Klukkan tvö
baula bö.
Klukkan þrjú
mjólka kú.
Klukkan fjögur
kveða bögur.
Klukkan fimm
segja bimm.
Klukkan sex
borða kex.
Klukkan sjö
segja Ö.
Klukkan átta
fara að hátta.
Klukkan níu
veiða kríu.
Klukkan tíu
kyssa píu.
klukkan ellefu
fleyta kellingu.
Klukkan tólf
ganga um gólf.
|
Litli Siggi
(lag: Allir krakkar)
Litli Siggi og litla Sigga
löbbuðu út í mó.
Bæði ber að tína
í berja fötu sína.
Það var gaman, það var gaman.
Hopp og hæ og hó!
Litli Siggi, litli Siggi
litla þúfu fann.
Blessuð berin ljúfu
byrgðu alla þúfu.
Eitt af öðru, eitt af öðru
upp í munninn rann.
Litla Sigga, litla Sigga
lítinn bolla sá.
En sá litaljóminn,
litlu fögru blómin.
Þau ég tíni, þau ég tíni,
þau skal mamma fá.
Heim þau gengu, heim þau gengu,
heldur kát og rjóð.
Buðu ber að smakka,
börnunum allir þakka.
Allir segja, allir segja:
“Ögn eru berin góð”
|
|
Labba út í mónum
Labba´út í mónum, labba´út í mónum,
tína ber, tína ber,
verða kalt á klónum, verða kalt á klónum,
hlaupa, hlaupa heim, hlaupa, hlaupa heim.
Klifra í klettunum, klifra í klettunum,
litast um, litast um,
verða kalt á tánum, verða kalt á tánum,
hlaupa, hlaupa heim, hlaupa, hlaupa heim.
Róa til fiskjar, róa til fiskjar,
renna´og draga þorsk, renna´og draga þorsk,
háar eru bárurnar, háar eru bárurnar,
best að halda heim, best að halda heim.
Lestin
Tuff, tuff, tuff, tuff lestin fer,
lestin fer, lestin fer.
Tuff, tuff, tuff, tuff lestin fer,
tuff, tuff lestin fer. Úh, ú-ú-ú-úh!!
Lag um tölurnar
Einn og tveir og þrír,
fjórir, fimm og sex.
Sjö og átta og níu -
teljum upp að tíu!
Lítill heimur
Þar er gott að vera sem gleðin býr,
þar sem gerast sögur og ævintýr,
svona´er veröldin okkar
sem laðar og lokkar
- svo ljúf og hýr!
Lítill heimur, ljúfur, hýr!
Lítill heimur, ljúfur, hýr!
Lítill heimur, ljúfur, hýr!
Eins og ævintýr.
|
Litlu börnin leika sér
Litlu börnin leika sér, liggja mónum í,
þau liggja þar í skorningum
og hlæja, hí, hí, hí,
þau úða berjum upp í sig og
alltaf tína meir,
þau elska berin bláu og brauðið
með.
Í berjamó er gaman, börnin leika saman,
börnin tína’ í bolla og brosa
við.
Sólin litar hólinn, heiðbláan
kjólinn,
um jörðu hrærast því ljúft
er geð.
Lóan er komin
Bandarískt þjóðlag
Páll Ólafsson
Lóan er komin að
kveða burt snjóinn.
Að kveða burt leiðindin það getur hún.
Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
hún hefur sagt mér til syndanna minna,
ég sofi og mikið og vinni ekki hót,
Hún hefur sagt mér að vaka og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.
Lita-lag
Græn eru laufin
og grasið sem grær.
Glóðin er rauð
og eldurinn skær.
Fífill og sóley
eru fagurgul að sjá.
Fjöllin og vötnin
og loftin eru blá.
Hvítur er svanur
sem syndir á tjörn.
Svartur er hann krummi
og öll hans börn.
|
Litirnir
Grænt, grænt, grænt
er grasið úti í haga.
Grænt, grænt, grænt
er gamla pilsið mitt.
Allt sem er grænt, grænt
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla Jón á
Grund.
Gul, gul, gul
er góða appelsínan.
Gul, gul, gul
er gamla húfan mín.
Allt sem er gult, gult
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla Kínverjann.
Rauð, rauð, rauð
er rósin hennar mömmu.
Rauð, rauð, rauð
er rjóða kinnin mín.
Allt sem er rautt, rautt
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla indíánann.
Svart, svart, svart
er sjalið hennar frænku.
Svart, svart, svart
er litla lambið mitt.
Allt sem er svart, svart
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla svertingjann.
Blátt, blátt, blátt
er hafið bláa hafið.
Blár, blár, blár
er blái himininn.
Allt sem er blátt, blátt
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla sjómanninn
Hvít, hvít, hvít
er hvíta snjókerlingin.
Hvít, hvít, hvít
eru skýin sem ég sé.
Allt sem er hvítt, hvítt
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla snjókarlinn.
|
|
Lagið um það sem er bannað
Það má ekki pissa bak við hurð
og ekki henda grjóti ofan´í
skurð,
ekki fara í bæinn og kaupa popp
og tyggjó
og ekki nota skrúfjárn fyrir
sleikjó.
Það má ekki vaða út í sjó
og ekki fylla húfuna af snjó,
ekki týna blómin sem eru úti´í
beði
og ekki segja "ráddi"
heldur "réði".
Þetta fullorðna fólk er svo skrítið,
það er alltaf að skamma mann,
þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.
Það má ekki skoða lítinn kall
og ekki gefa ketti drullumall,
ekki skjóta pabba með byssunni
frá ömmu
og ekki tína orma handa mömmu.
Það má ekki hjóla inn í búð
og ekki gefa litla bróður snúð,
ekki fara að hlæja þó einhver
sé að detta,
-ekki gera hitt og ekki þetta!
Þetta fullorðna…
|
Mamma borgar
Á kaupmanninn rétt við búðarborðið
svo brosfögur horfði Stína:
“Ég ætlaði bara að kaupa klæði
í kjól á brúðuna mína.”
“Og hvaða lit viltu, ljúfan,” sagði´ann
“í kjól á brúðuna þína?”
“Hvað, auðvitað rauðan, já
ósköp rauðan”
með ákafa svaraði Stína.
Hann brosandi fór og klippti klæðið.
“Hvað kostar það?” spurði
Stína.
“Einn koss” hann svaraði,
“kostar klæðið
í kjól á brúðuna þína.”
Í búðinni glumdi við gleðihlátur,
er glaðlega svaraði Stína:
“Hún mamma kemur í bæinn bráðum
og borgar skuldina mína.”
Með vindinum þjóta…
Með vindinum þjóta skúraský
:,:drýpur drop, drop, drop:,:
og droparnir hníga og detta´
á ný
:,:drýpur drop, drop, drop:,:
Og smáblómin vakna´ eftir
vetrarblund
:,:drýpur drop, drop, drop:,:
þau augu sín opna er grænkar
grund
:,:drýpur drop, drop, drop:,:
|
Nú er úti norðanvindur
Nú er úti norðanvindur,
nú er hvítur Esjutindur.
Ef ég ætti úti kindur,
mundi’ ég láta’ þær allar
inn,
elsku besti vinur minn!
:,: Úmbarassa, úmbarassa, úmbarassassa :,:
Upp er runninn öskudagur,
ákaflega skýr og fagur.
Einn með poka ekki ragur
úti vappar heims um ból.
Góðan daginn, gleðileg jól!
:,: Úmbarassa....:,:
Elsku besti stálagrér,
heyrirðu hvað ég segi þér?:
“Þú hefur étið úldið smér
og dálítið af snæri
elsku vinurinn kæri”!
:,: Úmbarassa....:,:
Þarna sé ég fé á beit,
ei er því að leyna.
Nú er ég kominn upp í sveit
á rútunni hans Steina.
Skilurðu hvað ég meina?
:,: Úmbarassa....:,:
|
|
Nú skal syngja um…
Nú skal syngja um kýrnar
sem baula hátt í kór
þær gefa okkur mjólkina
svo öll við verðum stór.
Mjólk, mjólk, mjólk, mjólk,
mjólk!
Mu mu mu, mu mu mu mu mu!
Mu mu mu, mu mu mu mu mu!
Mu mu mu, mu mu mu mu mu!
Mu mu mu mu mu!
Nú skal syngja um hænsnin
sem gagga endalaust
þau gefa okkur eggin
svo öll við verðum hraust.
Egg, egg, egg, egg, egg!
Ga ga gó, ga ga ga ga gó!
Ga ga gó, ga ga ga ga gó!
Ga ga gó, ga ga ga ga gó!
Ga ga ga ga gó!
Nú skal syngja um lömbin
sem jarma sætt og blítt
þau gefa okkur ullina
svo okkur verði hlýtt.
Ull, ull, ull, ull, ull!
Me me me, me me me me me!
Me me me, me me me me me!
Me me me, me me me me me!
Me me me me me!
|
Nú blánar yfir berjamó
Nú blánar yfir berjamó,
og börnin smá í mosató
og lautum leika sér.
Þau koma, koma kát og létt,
á kvikum fótum taka sprett
að tína, tína ber.
En heima situr amma ein,
að arni hvílir lúin bein,
og leikur bros á brá,
er koma þau með körfur inn
og kyssa ömmu á vangann sinn
og hlæja berjablá.
Nafnalag
:,:Nú ætlum við að segja hvað
við heitum:,:
Hvað heitir þú?
:,:"____",
"____", je-je-je:,:
Óli og Berta
Óli fór til Bertu, bakaríistertu,
og bað hana að kyssa sig.
Þá sagði Berta, bakaríisterta:
“Bara ef þú elskar mig!”
Þá sagði Óli, sem var á hjóli,
“Berta, ég elska þig!”
Glöð sagði Berta, bakaríisterta,
“Nú máttu kyssa mig!”
(“kyss - kyss” (kysst út í
loftið))
|
Óskasteinar
Fann ég á fjalli fallega steina,
faldi þá alla, vildi þeim
leyna.
Huldi þar í hellisskúta heillasteina
alla mína unaðslegu óskasteina.
Langt er nú síðan leit ég þá steina
lengur ei man ég óskina neina
er þeir skyldu uppfylla um
ævidaga
ekki frá því skýrir þessi
litla saga.
Gersemar mínar græt ég ei lengur
geti þær fundið telpa eða
drengur.
Silfurskæra kristalla með
grænu og gráu
gullna roðasteina rennda fjólubláu.
Með sól í hjarta
Með sól í
hjarta og söng á vörum
við setjumst niður í grænni laut.
í lágu kjarri við kveikjum eldinn
kakó hitum og eldum graut.
þetta lag endum við
á ýmsa vegu, t.d.:
Bíó bauk, salt á graut
o´ná þennan hafragraut o.s.frv.
|
|
|