Söngtextar

[ A - E ] [ F - J ] [ K - O ] [ P - T ] [ U - Ö ] [ Jólalög ]


Adam átti syni sjö.

Adam átti syni sjö
sjö syni átti Adam.
Adam elskaði alla þá
og allir elskuðu Adam.
Hann sáði, hann sáði.
Hann klappaði saman lófunum.
Hann stappaði niður fótunum.
Hann ruggaði sér í lendunum
og snéri sér í hring.

Aðfangadagskvöld

Nú er Gunna á nýju skónum,
nú eru að koma jól,
Siggi er á síðum buxum,
Solla á bláum kjól.

Mamma er enn í eldhúsinu
eitthvað að fást við mat,
indæla steik hún er að færa
upp á stærðar fat.

Pabbi enn í ógnar basli
á með flibbbann sinn:
,,Fljótur Siggi,finndu snöggvast flibbahnappinn minn!"

Kisu er eitthvað órótt líka,
út fer brokkandi,
ilmurinn úr eldhúsinu
er svo lokkandi.

Jólatréð í stofu stendur,
stjörnuna glampar á,
kertin standa á grænum greinum,
gul og rauð og blá.
---Ragnar Jóhannesson

Babbi segir.
Babbi segir, babbi segir:
Bráðum koma dýrðleg jól
Mamma segir, mamma segir,
Þá fær Magga nýjan kjól.
Hæ, hæ, ég hlakka til
hann að fá og gjafirnar,
bjart ljós og barnaspil,
borða sætu lummurnar.

Mamma segir, mamma segir,
Magga litla ef verður góð,
henni gef ég, henni gef ég
haus á snoturt brúðufljóð.
Hæ hæ ég hlakka til
hugnæm verður brúðan fín.
Hæ, hæ, ég hlakka til, himnesk verða jólin mín.
Benedikt Þ. Gröndal

Bráðum koma jólin.

Skín í rauðar skotthúfur
skuggalangan daginn,
jólasveinar sækja að,
sjást um allan bæinn.
Ljúf í geði leika sér
lítil börn í desember,
inni í frið og ró,
úti í frosti og snjó,
því brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.

Uppi ´á lofti , inni í skáp
eru jólapakkar,
titra öll af tilhlökkun
tindilfættir krakkar.
Komi jólakötturinn
kemst hann ekki bæinn inn,
inn í frið og ró,
úti í frosti´ og snjó,
því brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.

Bjart er yfir Betlehem

Bjart er yfir Betlehem,
blikar jólastjarna,
stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarnan allra barna.
Var hún áður vitringum
vegaljósið skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa kæra.

Víða höfðu vitringar
vegi kannað hljóðir,
fundir sínum ferðum á
fjöldamargar þjóðir.
Barst þeim allt frá Betlehem
birtan undurskæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa kæra.

Barni gjafir báru þeir,
blítt þá englar sungu.
Lausnaranum lýstu þeir,
lofgjörð drottni sungu.
Bjart er yfir Betlehem,
blikar jólastjarna,
stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarnan allra barna.

Ég sá mömmu kyssa jólasvein.

Ég sá mömmu kyssa jólasvein
við jólatéð í stofunni í gær
Ég læddist létt á tá
til að líta gjafir á,
hún hélt ég væri seinsofandi
Stínu dúkku hjá.

Og ég sá mömmu kitla jólasvein
og jólasveinninn út um skeggið hlær
Já, sá hefði hlegið með
hann pabbi minn hefði ´hann séð
mömmu kyssa jólasvein í gær .
Hinrik Bjarnason

Í skóginum.

Í skóginum stóð kofi einn,
sat við gluggann jólasveinn.
Þá kom lítið héraskinn,
sem vildi komast inn.
Jólasveinn ég treysti´á þig,
veiðimaður skýtur mig.
Komdu litla héraskinn,
Því ég er vinur þinn.


Jólasveinar, einn og átta.

Jólasveinar einn og átta
ofan komu´af fjöllunum.
Í fyrrakvöld þeir fóru´að hátta,
fundu´hann Jón á Völlunum.

Andrés stóð þar, utan gátta,
það átti að færa, hann tröllunum.
Þá var hringt í Hólakirkju
öllum jólabjöllunum.

Jólasveinar ganga um gátt.

Jólasveinar ganga um gátt
með gildan staf í hendi,
móðir þeirra hrín við hátt
og hýðir þá með vendi.

:,: Upp á stól
stendur mín kanna.
Níu nóttum fyrir jól
þá kem ég til manna.:,:
-Þjóðvísa-

Jólin koma.

Báðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsta kert´og spil.

Hvað það verður, veit nú enginn,
vandi er um slíkt að spá.
Eitt er víst að alltaf verður
ákafleg gaman þá.
Jóhannes úr Kötlum

Gekk ég yfir sjó og land.

Gekk ég yfir sjó og land,
hitti þar einn gamlan mann.
Sagði svo og spurði svo:
Hvar áttu heima?

Ég á heima Klapplandi,
Klapplandi , Klapplandi.
Ég á heima á Klapplandi,
Klapplandinu góða

Gekk ég yfir sjó og land,
og hitti þar einn gamlan mann.
Spurði svo og sagði svo
og hvar átt þú nú heima ?
Ég á heima á Grátlandi...
Hopplandi
Hlælandi.
Stapplandi.
Hvíslandi.
Íslandi.

Göngum við í kringum

Göngum við í kringum einiberjarunn,
einiberjarunn, einiberjarunn,,
göngum við í kringum einiberjarunn
snemma á mánudagsmorgni.

Sami fyrrihluti, nema hvað skipt er um vikudag:

þriðjudagsmorgni,
vindum okkar þvott,
miðvikudagsmorgni,
hengjum okkar þvott,
fimmtudagsmorgni,
teygjum okkar þvott,
föstudagsmorgni,
straujum okkar þvott,
laugardagsmorgni,
skúrum okkar gólf,
sunnudagsmorgni,
greiðum okkar hár,
sunnudagskvöldi,
göngum kirkjugólf.

Litlu andarungarnir

Litlu andarunganir
:,: allir synda vel.:,:
:,: Höfuð hneigja´í djúpið
og hreyfa lítil stél:,:

Litlu andarungarnir
:,: ætla út á haf.:,:
:,: Fyrst í fjarlægð skima
og fara svo í kaf.:,:

Börnin frísk og fjörug
:,: fara öll í hring.:,:
:,: Hönd í hendi smella
og hoppa svo í kring.:,:
H.R. Þýddi

Folaldið mitt hann Fákur

Folaldið mitt hann Fákur
fæddur var með hvítan hóf.
Og er hann áfram sentist,
öll varð gatan reykjarkóf.

Hestarnir allir hinir
hæddu Fák og settu hjá.
Í stað þess að stökkva í leikinn
stóð hann kyrr og horfði á.

Milli élja á jólakvöld
jólasveinninn kom:
,,Fæ ég þig nú Fákurinn
fyrir stóra sleðann minn."

Þá urðu klárar kátir
kölluðu í einni hjörð:
,,Fákur með fótinn hvíta,
frægur er um alla jörð."

Hjúpar hvíta mjöll

Hjúpar hvíta mjöll,
hæðir,dali´og fjöll.
Sofa´ um signuð jól
svartálfar og tröll.
Í kvöldsins kuldablæ
kafa djúpan snæ.
Jólasveinar, jólasveinar
heim að bóndabæ.

Klukknahljóð, klukknahljóð
enn um óttubil
bónda´og fljóð,
börnin góð boða kirkju til.
klukknahljóð, klukknahljóð,
duna fannkrýnd fjöll.
kátt er nú í byggð og borg,
bjart í koti´ og höll.

Björt á grænni greinn
glitra ljósin ein,
bráðum börnin sjá
birtast jólasvein.
Hylur hvíta mjöll
hæðir dali´og fjöll.
Kátt er nú í byggð og borg
bjart í koti´og höll.

Negrastrákar

Negrastrákar fóru á rall,
þá voru þeir tíu,
einn drakk flösku af ólyfjan
en eftir urðu níu.

Níu litlir negrastrákar
fóru seint að hátta
einn þeirra svaf yfir sig
og þá voru eftir átta

Átta litlir negrastrákar
vöknuðu klukkan tvö.
Einn þeirra dó úr geyspum
en þá voru eftir sjö.

Sjö litlir negrastrákar
sátu og átu kex
einn þeirra át yfir sig
en þá voru eftir sex.

Sex litlir negrastrákar
sungu dimmalimm
einn þeiirra sprakk á limminu
en þá voru eftir fimm.

Fimm litlir negrastrákar
héldu að þeir væru stórir
einn þeirra fékk á hann
en þá voru eftir fjórir.

Fjórir litlir negrastrákar
fóru að reka kýr
ein kýrin stangaði einn þeirra
en þá voru eftir þrír.

Þrír litlir negrastrákar
þorðu nú ekki meir
einn þeirra dó úr hræðslu
en þá voru eftir tveir.

Tveir litlir negrastrákar
þögðu nú eins og steinn
annar hann varð vitlaus
en þá var eftir einn

Einn lítill negrastrákur
sá hvar gekk ein dama
Hann gaf sig á tal við hana
og bað hennar með það sama

Negrastelpan sagði já
og svo fóru þau í bíó
ekki leið á löngu
uns þau urðu aftur tíu.

Nú skal segja

Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig litlar telpur gera,
vagga brúðum, vagga brúðum
og svo snúa þær sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig litlir drengir gera,
skoppa gjörðum, skoppa gjörðum,
og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig ungar stúlkur gera,
þær sig hneigja, þær sig hneigja
og svo snúa þær sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig ungir piltar gera,
taka ofan, taka ofan,
og svo snúa þeir sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig gamlar konur gera,
prjóna sokka, prjóna sokka,
og svo snúa þær sér í hring.

Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig gamlir karlar gera,
taka í nefið, taka í nefið,
og svo snúa þeir sér í hring.

Skeytum hús með greinum

Skreytum hús með greinum grænum,
fa la la la la la la la la.
Gleði ríkja skal í bænum,
fa la la la la la la la la.
Tendrum senn á trénu bjarta
fa la la la la la la la la.
Tendrum jól í hverju hjarta
fa la la la la la la la la.

Ungir gamlir - allir syngja
fa la la la la la la la la.
Engar sorgir hugann þyngja,
fa la la la la la la la la.
Jólabjöllur blíðar kalla,
fa la la la la la la la la.
Boða frið um veröld alla
fa la la la la la la la la

Það á að gefa börnum brauð.

Það á að gefa börnum brauð
að bíta í á jólunum,
kertaljós og klæðin rauð,
svo komist þau úr bólunum,
væna flís af feitum sauð,
sem fjalla gekk á hólunum,
nú er hún gamla Grýla dauð,
gafst hún upp á rólunum.
-Þjóðvísa-

 

   


 
 

Leikskólinn Laugalandi, 851 Hella

s:4876633, leikskolinn@laugaland.is