Hagnýtar upplýsingar

Opnunartími/sumarfrí
Leikskólinn er opinn frá kl. 8:00 – 17:00 alla daga. Boðið er upp á að börnin dvelji hér í 4, 5, 6, 7, 8 eða 9 tíma á dag. Leikskólanum verður lokað í 6 vikur í sumar frá og með 1. júlí til og með 12. ágúst og þá fellur greiðsla skólagjalda niður. Allt sumarfrí sem tekið er umfram þessar 6 vikur greiðast að fullu eins og um eðlilegan skólatíma sé að ræða.

Að koma með og sækja barn í leikskólann
Þegar komið er með barn í leikskólann skal tilkynna það starfsfólki. Starfsfólki leikskólans Laugalandi er óheimilt að afhenda barn öðrum en foreldrum/forráðamönnum og þeim sem forráðamenn hafa veitt heimild til að sækja barnið og tilkynnt það leikskólanum. Ef aðrir en foreldrar/forráðamenn barns eiga að sækja barnið ber að tilkynna það leikskólanum. Þegar barn er sótt skal ávalt séð til þess að starfsfólk sé látið vita.

Námskeiðs -og skipulagsdagar
Námskeiðs- og skipulagsdagar starfsfólks eru 3 á ári. Þessir dagar eru notaðir til að skipuleggja og undirbúa uppeldisstarf leikskólans, meta það starf sem unnið hefur verið og einnig eru þeir nýttir til endurmenntunar kennara. Leikskólinn er lokaður þessa daga og eru þeir auglýstir með a.m.k. 3ja vikna fyrirvara. Hefð hefur skapast fyrir því að skipulagsdagar séu haldnir fyrsta vinnudag eftir áramót og á Öskudaginn. Foreldrar ættu því að gera gengið að því sem vísu að leikskólinn sé lokaður þessa daga.

Óhöpp og slys / tryggingar
Í barnahópi geta alltaf orðið óhöpp eða slys. Ef slíkt kemur fyrir er strax haft samband við foreldra og farið með barnið á heilsugæsluna ef þörf er talin á því.
Börn í leikskólum Rangárþings ytra og Ásahrepps eru slysatryggð á meðan þau dvelja í leikskólanum.

Leikskólagjöld
Við upphaf leikskólagöngu eru foreldrar/forráðamenn boðaðir í viðtal til leikskólastjóra. Þar undirrita báðir aðilar samning um leikskóladvöl barnsins og skil á leikskólagjöldum. Leikskólagjaldið er greitt fyrirfram einn mánuð í senn og er eindagi 15. hvers mánaðar. Samningnum skal segja upp með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. Verði vanskil á gjöldum í þrjá mánuði er samningnum rift af hálfu rekstaraðila, starfsfólki er þá ekki lengur heimilt að taka við barninu til dvalar í leikskólanum. Ef barn er sótt of seint greiða foreldrar sekt. Gildir það líka ef komið er með barnið fyrir umsamdan vistunartíma.

Leikskólataskan/fatahólf
Leikskólinn er vinnustaður barnanna og á fjörugum vinnustað má alltaf gera ráð fyrir óhöppum af ýmsum toga Við vinnum með lím, málningu og ýmis efni sem sest geta í föt barnanna. Klæðnaður barnanna þarf því að vera þannig að á honum megi sjá. Gott er að fötin séu víð og þægileg þannig að börnin eigi auðvelt með að klæða sig sjálf í og úr, enda er sjálfshjálp liður í leikskólauppeldinu.

Mikilvægt er að börnin séu klædd eftir veðri og hafi þann klæðnað meðferðis sem gera má ráð fyrir að þau þurfi á að halda hvern dag. Það sem þarf að vera í leikskólatöskunni er: Föt til skiptanna, s.s. nærbuxur, bolur, sokkar/sokkabuxur, síðbuxur og peysa. Pollagallinn og stígvél eru nauðsynleg og síðan snjógalli, hlý peysa, vettlingar til skiptanna, húfa og ullarsokkar þegar það á við. Að lokum er það liður í uppeldi barnanna í leikskólanum að ganga snyrtilega um og hirða fötin sín. Foreldrar auðvelda starfsfólki og börnum það verk, með því að hugsa vel um hólf barnanna sinna. Taka heim blaut og skítug föt og hafa hvorki meira né minna í töskunni en þar þarf að vera. Ganga vel um það sem geymt er yfir vikuna.
Hólfin á síðan að tæma alveg á föstudögum til þess að hægt sé að þrífa þau vel.
Börn sem nota bleiur koma með þær að heiman.

Merktur fatnaður skilar sér best.

Fjarvistir
Ef barnið kemur ekki í leikskólann vegna veikinda eða annarra ástæðna, þá vinsamlegast látið okkur vita. Ef barnið vill ekki koma í leikskólann látið okkur einnig vita svo hægt sé að finna orsökina og vinna með barnið.

Veikindi
Eftir veikindi mega börn vera inni að hámarki tvo daga enda hafi þau verið heima í a.m.k. einn dag hitalaus. Skilaboð um inniveru þurfa að koma frá foreldrum sjálfum en ekki barninu. Við bjóðum upp á styttri útiveru eftir veikindi ef foreldrar óska. Athugið að hægt er að vera veik(ur) þó svo að hiti sé ekki merkjanlegur. Foreldrar verða því að meta það hverju sinni hvort barnið er tilbúið að takast á við skóladaginn

Breytingar á skólatíma
Óski foreldrar eftir breytingum á skólatíma barnsins skal þeim óskum komið til leikskólastjóra á þar til gerðu eyðublaði með mánaðar fyrirvara. Reynt er að koma til móts við óskir foreldra um breytingar.

Uppsagnarfrestur
Uppsagnarfrestur á skóladvöl er einn mánuður og miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar. Tilkynna skal leikskólastjóra uppsögnina skriflega á eyðublaði sem fæst í leikskólanum. Greitt er fyrir skóladvöl út uppsagnarfrestinn nema samið sé um annað.

Fréttablað
Leikskólinn gefur út fréttabréf eftir þöftum, þó eigi sjaldnar en tvisvar á önn.

Dagbók/Upplýsingatafla
Upplýsingatafla er í fataklefanum þar sem daglegum skilaboðum og auglýsingum er komið fyrir. Í dagbókina skrifum við helstu fréttir, hvað er á döfinni og það sem við erum að gera hverju sinni. Einnig hvað hefur verið í matinn. Dagbókin liggur alltaf uppi á skúffuskáp þar sem foreldrar geta auðveldlega nálgast hana.

 

 
 

Leikskólinn Laugalandi, 851 Hella

s:4876633, leikskolinn@laugaland.is