SUMARFRÍ

Frá og með 1. júlí til og með 11. ágúst munu nemendur og starfsfólk vera í sumarfríi ;0)

FJÖRUFERÐ

Þriðjudaginn 15. júní fórum við í fjöruferð. Tekin var rúta enda foreldrum og systkinum boðið með. Farið var í fjöruna við Stokkseyri og sandfjöruna rétt við Hafið bláa (veitingastaðinn). Vilborg bakaða kleinur og Magga flatkökur sem við tókum með í nesti ásamt Svala og kaffi. Þetta var mjög ánægjuleg ferð þar sem við fengum einstaklega gott veður og margt var að skoða. Mikið var sungið í rútunni báðar leiðir!

SUMAR, AFMÆLIS- OG ÚTSKRIFTARHÁTÍÐ

var haldin í dag 28. maí. Þó ekki liti vel út með veður í upphafi dags þá rættist úr því og við skemmtum okkur og grilluðum í blíðskaparveðri. Dagskráin hófst á því að Herdís bauð alla velkomna. Þá komu útskriftarbörnin og fóru með nokkrar af þeim vísum sem þau hafa lært í hádeginu hjá Vilborgu í vetur. Það eru dýravísur eftir Hákon Aðalsteinsson sem við höfum tekið miklu ástfóstri við enda höfða þær til barnanna hér. Dæmi er vísan um hana Lukku:

Lukka baular lágum rómi,

liggur út á bakka.

Í mínum spena er mjólk og rjómi,

matur fyrir krakka.

Þá kom Eyrún Jónasdóttir tónlistarkennari og sýndi okkur hvað útskriftarbörnin eru orðin dugleg að lesa og spila eftir nótum. Því næst fluttu þau ásamt stúlkunum í Rauða hóp lagið um óskasteinana sem þau fluttu á lokatónleikum Tónlistarskóla Rangæinga. Eyrún afhenti svo börnunum úr Rauða hóp og útskriftarbörnunum viðurkenningarskjöl fyrir hönd Tónlistarskólans. Þá var komið að formlegri útskrift. Börnin fengu viðurkenningarskjöl í tilefni þess að þau hafa nú lokið fyrsta skólastiginu og minningabók með mánaðarmyndum, ljósmyndum o.fl. Óskum við Kristínu, Margréti Heiðu, Ómari Högna, Sigrúnu Birnu og Jónasi innilega til hamingju með þennan áfanga og óskum þeim velfarnaðar á næsta skólastigi. Útskriftarhópurinn gaf leikskólanum tvennar hjólbörur að gjöf sem munu koma sér ákaflega vel. Takk fyrir okkur!! Því næst var farið út í leiki, grillað, sungið og haft það notalegt. Samhliða hátíðinni var myndlistasýning hér í leikskólanum þar sem verk barnanna voru á víð og dreif um leikskólann. Hátíðin tókst í alla staði vel og hér í albúminu er hægt að skoða myndir frá hátíðinni.

SKÓLAHEIMSÓKNIR

Í næstu viku munu börnin í Gula hóp og 1. bekk Laugalandsskóla fara í skólaheimsóknir. Er þetta liður í samstarfi skólastiganna.

Miðvikudaginn 12. maí koma börnin (strákarnir) úr 1. bekk í heimsókn til okkar kl. 9:10 og kl. 9:50 fara börnin úr Gula hóp með þeim til baka út í Laugalandsskóla og taka þátt í frímínútunum þar.

Fimmtudaginn 13. maí fara börnin úr Gula hóp út í Laugalandsskóla kl. 11.15, borða þar hádegismat með sínum verðandi skólafélögum og kennurum og taka þátt í tveimur kennslustundum.

Föstudaginn 14. maí munu börnin í Gula hóp fara snemma morguns með skólabílum heiman frá sér yfir í Laugalandsskóla og vera þar fram að hádegismat. Ef spurningar vakna þá endilega hafið samband.

Ferð á Lund

Þann 14. apríl sl. fóru eldri börnin í ferð á dvalar- og hjúkrunarheimilið Lund á Hellu. Matti skólabílstjóri skutlaði okkur á stóra skólabílnum sínum. Á Lundi kynntu börnin sig með aðstoð Herdísar og svo sungum við nokkur lög við undirleik Vilborgar. Að söngnum loknum þáðum við kaffi, djús og afbragðs gott meðlæti frá kvenfélaginu Einingu - Holtum. Herdís og Gugga sáu svo um aksturinn til baka.

Ferðin heppnaðist mjög vel og hlutu börnin lof í lófa fyrir prúðmannlega framkomu og fagran söng

 

AUKAPÁSKAFRÍ

Kominn er upp listi inni í fataklefa þar sem við biðjum ykkur kæru foreldrar að merkja við nöfn barnanna ykkar ef þau verða í fríi þá daga sem mötuneyti Laugalandsskóla verður lokað (páskafrí).Þannig er betur hægt að áætla matarinnkaupin þá daga.

 

SUNDFÖT

Foreldrar barna í Gula og Rauða hópi! Nú er sól tekin að hækka á lofti og þá þurfa sundfötin að vera með í íþróttatöskunni ásamt leikfimisfötunum. Veðráttan og Gylfi munu svo ákveða hvort farið verður í sundlaugina eða íþróttasalinn:0)

 

NÝTT NETFANG

Leikskólinn hefur nú fengið nýtt netfang en það er: leikskolinn@laugaland.is Fréttabréfið birtist einnig á heimasíðu leikskólans. Slóðin er: http://www.rang.is/rang/holt/leikskoli/


SUMARLOKUN

Við viljum byrja á því að þakka ykkur foreldrum kærlega fyrir góð skil á þeim könnunum sem gerðar voru í tengslum við sumarleyfi leikskólanna. Á fundi fræðslunefndar þann 11. febrúar sl. var ákveðið að leikskólinn okkar yrði lokaður í 6 vikur í sumar. Ekki var fallist á tveggja vikna aukafrí án endurgjalds eins og verið hefur. Sumarlokunin verður frá og með 1. júlí til og með 12. ágúst.

FORELDRAVIÐTÖL

Foreldraviðtölum er nú lokið og þökkum við kærlega fyrir góða mætingu í þau. Gott var að heyra ykkar skoðanir á leikskólanum og ánægjuna sem fram kom með starfið sem hér fer fram.

HÓPASTARF

Börnin hafa verið að vinna að margvíslegum viðfangsefnum í hópastarfi undanfarið, sem og endranær.
Guli hópur hefur unnið að gerð fingrabrúða, spilað, farið í leiki, hlustað á stuttar sögur og svarað spurningum úr þeim á eftir, samið og myndskreytt sögu, unnið í bókinni sinni og farið í tölvuna.

Blái hópur hefur teiknað myndir, kubbað saman, málað með penslum og fingrum á trönum og á gólfi. Æft sig í að þekkja litina, sungið, farið í tölvuna, leikið með föt og dúkkur, æft sig í samskiptum, límt eggjaskurn,fjaðrir og sand á blöð.
Græni hópur hefur farið í ýmsar hreyfiæfingar, málað með fótunum, klippt og límt, spilað, leikið sér með lestina og vatnslitað
Rauði hópur hefur leirað með sjálfharðnandi leir og málað á hann, samið og myndskreytt sögu, spilað og æft liti og form

ÖSKUDAGSSKEMMTUN

Foreldrafélag leikskólans stóð að vanda fyrir skemmtun í matsal Laugalandsskóla á Öskudaginn. Fjölmenntu þangað bæði stórir og smáir og skemmtu sér hið besta. Takk fyrir góða skemmtun.


STIG AF STIGI

Meðan foreldrar og börn skemmtu sér á Öskudagsskemmtun foreldrafélagsins notaði starfsfólk leikskólans daginn til náms. Við sóttum námskeiðið Stig af stigi í umsjón Ásþórs Ragnarssonar frá Reyni- ráðgjafarstofu. Stig af stigi er kennsluefni sem notað er til að auka félags- og tilfinningaþroska barna. Nánari kynning verður á kennsluefninu síðar.

FERÐ Á LUND

Nú í mars stendur til að fara með elstu árgangana í heimsókn á Dvalarheimilið Lund í samvinnu við kvenfélagið Einingu í Holtum. Ferðin verður auglýst þegar nær dregur.

Þorrablót

Þegar leið að bóndadegi kom þorrahugur í okkur og við byrjuðum að rifja upp lög sem tengjast honum t.d. Þorraþræll og Allur þorramatur á að fara. Að venju héldum við þorrablót og fengum gómsætan þorramatinn úr mötuneyti Laugalandsskóla. Þorrablótsdagurinn var hefðbundinn til kl 11:00 en þá hópuðumst við öll í Leikland, sungum saman og hver hópur flutti sitt skemmtiatriði. Guli hópur reið á vaðið og fór með þuluna: Ég sá sauð suður í mó. Næstur var rauði hópur sem fór með vísuna: Stór og digur kerling og söng lag við sömu vísu. Græni hópur fór með vísuna: Ró, ró á selabát. Í lokin söng Blái hópur: Það var einu sinni strákur sem átti lítinn bíl. Þegar skemmtiatriðunum lauk fengu allir aðgöngumiða þorrablótinu sem afhenda þurfti áður en gengið var borðs. Ýmislegt var á boðstólum, gaman að smakka og allir fundu eitthvað sem þeim fannst bragðast vel.

Starfsnám

Henný mun halda áfram hjá okkur í starfsnámi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands á þessari vorönn. Hún verður hjá okkur á þriðjudögum frá kl 8:00 – 16:00.

Foreldraviðtöl

Einu sinni á ári köllum við foreldra allra barna í leikskólanum í viðtal. Í því viðtali veitum við upplýsingar um hvernig barninu gengur og líður í leikskólanum. Leikskólakennarar nota ýmsar aðferðir við að meta hvernig barn er statt á hinum ýmsu þroskaþáttum. Með yngstu árgangana munum við m.a. styðjast við gátlista, næstelsta árganginn MOT-hreyfiþroskapróf og Íslenska þroskalistann og elsta árganginn MOT-próf og Hljóm-2. Foreldraviðtölin verða frá og með 23. febrúar til og með 1. mars milli kl. 13:00 og 15:00. Hvert viðtal er áætlað að taki um 20 mínútur. Skráningarlisti er kominn inn í fataklefa og eru foreldrar hvattir til að velja sér tíma.

Matsaðferðir

Allar þessar matsaðferðir eru til aðstoðar við starf leikskólakennara, með hvert einstakt barn. Hafa verður í huga að þær gefa vísbendingar um hvar barn er í þroskaferlinu en eru ekki dómur.

MOT-hreyfiþroskapróf: Barnið fer í ýmsa hreyfileiki sem gefa vísbendingu um hvar það er statt í hreyfiþroska.

Íslenski þroskalistinn:Mál- og hreyfiþroski barns er metin með því að afla upplýsinga frá móður.

Hljóm-2:Athugun á hljóð- og málvitund barns í leikjaformi.

Skipulags- og námskeiðsdagur

Næsti skipulags og námskeiðsdagur starfsfólks verður að vanda á öskudegi sem er í miðvikudaginn 25. febrúar. Athugið að venjubundið leikskólastarf fellur niður þann dag og börnin mæta ekki.

Gjöf til leikskólans

Leikskólanum barst á dögunum vegleg gjöf frá foreldrafélagi leikskólans. Það var þríhjól frá Barnasmiðunni fyrir yngstu börnin. Mun það koma að mjög góðum notum og þökkum við kærlega fyrir okkur :0)



 
 

Leikskólinn Laugalandi, 851 Hella

s:4876633, leikskolinn@laugaland.is