|
Foreldrafélag
Þegar
barn byrjar í leikskólanum verða foreldrar/forráðamenn
þess sjálfkrafa meðlimir í foreldrafélaginu.
Þeir greiða í ferða- og skemmtisjóð
foreldrafélagsins.
Foreldrafélag hefur starfað við leikskólann um
árabil. Hefur það jafnan stutt dyggilega við starfsemi
leikskólans s.s. með kaupum á ýmsum tækjum
og leikföngum. Einnig hefur það staðið fyrir
leiksýningum, ferðalögum, og skemmtunum fyrir börnin
og auðgað þannig starfið á ýmsan hátt.
Foreldrar bera frumábyrgð
á uppeldi og velferð barna sinna en leikskólinn er
viðbót við uppeldi foreldra, með aðrar áherslur
s.s. að æfa börnin í að vinna í hópi
og tilheyra hópi jafningja.
|