|
|
Söngtextar
[
A - E ] [ F - J ] [ K - O ] [
P - T ] [ U - Ö ] [
Jólalög ]
|
Fimmeyringurinn
Ef að nú hjá pabba einn fimmeyring ég
fengi
fjarskalega hrifin og glöð
ég yrði þá.
Ég klappa skyldi pabba og
kyssa vel og lengi
og kaupa síðan allt sem mig
langar til að fá.
Fyrst kaupi ég mér brúðu sem leggur aftur
augun,
og armbandsúrið fína af fallegustu
gerð.
Og af því hvað hún mamma er
orðin þreytt á taugum,
þá ætla ég að kaupa bíl í
hverja sendiferð.
Hjólhest og járnbraut ég ætla að gefa
Geira,
gríðarstóra flugvél ég kaupi
fyrir Finn.
Svo kaupi ég mér döðlur og
súkkulaði og fleira
og síðan skal ég gefa pabba
allan afganginn.
|
Fiskarnir tveir
Nú ætlum við að syngja um fiskana tvo
sem ævi sína enduðu í netinu svo.
Þeir syntu og syntu og syntu
um allt
en mamma þeirra sagði: Vatnið
er kalt!
Baba, búbú, baba, bú!
Baba, búbú, baba, bú!
Þeir syntu og syntu og syntu
um allt
en mamma þeirra sagði: Vatnið
er kalt!
Annar hét Gunnar en hinn
hét Geir,
þeir voru pínulitlir báðir tveir.
Þeir syntu og syntu og syntu
um allt
en mamma þeirra sagði: Vatnið
er kalt!
Baba, búbú, baba, bú!
Baba, búbú, baba, bú!
Þeir syntu og syntu og syntu
um allt
en mamma þeirra sagði: Vatnið
er kalt!
|
Frost er úti fuglinn
minn
Frost er úti fuglinn minn,
ég finn hvað þér er kalt.
Nærðu engu í nefið þitt,
því nú er frosið allt?
En ef þú bíður augnablik
ég ætla að flýta mér,
að biðja hana mömmu mína
um mylsnu handa þér.
|
|
Ferskeytlur
Afi minn og amma mín
úti á Bakka búa.
Þau eru bæði sæt og fín,
þangað vil ég fljúga.
Fljúga hvítu fiðrildin
fyrir utan glugga.
Þarna siglir einhver inn
ofurlítil dugga.
Sigga litla systir mín
situr úti´í götu.
Er að mjólka ána sín
í ofurlitla fötu.
Afi minn fór á honum Rauð
eitthvað suður á bæi,
sækja bæði sykur og brauð,
sitt af hvoru tagi.
|
Fimm
litlir apar
Fimm litlir apar sátu uppi´í tré,
þeir voru að stríða krókódíl-
"Þú nærð ekki mér!"
Þá kom hann herra Krókódíll,
hægt og rólega
- og NAMM! (smjatt-smjatt-smjatt).
Fjórir litlir apar sátu…
(sungið þar til enginn
api er eftir)
|
Göngum, göngum...
Göngum, göngum, göngum upp í gilið,
gljúfrabúann til að sjá.
Þar á klettasyllu svarti krummi
sínum börnum liggur hjá.
Halli
á grúfunni
Haldiði´ekki hann´Halli
komi á grúfunni,
á heljarstökki fram af einni
þúfunni.
Hann fór það bara fínt, en hélt
hann hefði týnt
:,:gleraugunum, höfðinu eða
húfunni:,:
Hátt
upp´á fjalli...
Hátt upp´á fjalli þar
búa þrjú tröll:
Tröllapabbi, tröllamamma og
litli Trolli tröll.
BÖÖHH!! segir pabbi tröll.
Bööhh!! segir mamma tröll,
en hann litli Trolli tröll,
hann segir bara: bööhhhhh!! (hvíslað).
|
|
Háttatími á himninum
Hvað gerir sólin þegar hún sest á kvöldin?
Háttar litlu geislana
oní himinsængina
og fyrir stóru gluggana
hún dregur stjörnutjöldin,
það gerir sólin á kvöldin.
Hvað gerir tunglið þegar það tekur völdin?
Hristir silfurhattinn sinn,
svo hrynur úr´onum draumurinn
og sáldrast yfir koll og kinn
er sefur barna fjöldinn,
það gerir tunglið á kvöldin.
Hreyfa litla...
Hreyfa litla fingur,
hreyfa litla fingur,
hreyfa litla fingur
og frjósa eins og skot!
(tær, tungur, nebba, augu, hendur, fætur o.s.frv.)
|
Hanna og kjóllinn
Hún Hanna fór
í kjólinn
og hann var berjablár,
svo steig hún upp á stólinn
og strauk sitt rauða hár.
Og spegillinn hann sagði:
,,Að sjá hvað þú ert fín
í berjabláa kjólnum
með bönd og rykkilín".
Mig langar líka´að
sauma
mér lítinn bláan kjól
á litinn eins og berin sem vaxa´á Álfahól.
og dilla mér með Hönnu og dansa Óla skans
og flétta svo úr sóleyjum
fínan blómakrans.
|
Hóký-Póký
Við setjum hægri höndina inn,
við setjum hægri höndina út,
inn, út, inn, út - og hristum
hana til.
Við gerum hóký-póký
og snúum okkur í hring.
Þetta er allt og sumt!
Oooó-Hóký-hóký-póký!
Oooó-Hóký-hóký-póký!
Oooó-Hóký-hóký-póký!
Þetta er allt og sumt!
Hey baluba
:,: Hey
baluba:,:
:,: Hey, hey balula lei:,:
:,: ori, ori ei.:,:
:,: Balu, balu, baggasei:,:
Sungið
sterkt/veikt, hátt/lágt.
Oft er börunum skipt í tvo hópa,
fyrst syngur annar hópurinn,
svo endurtekur hinn.
Stundum syngja öll börnin
á móti kennara.
|
|
Háttatími á himninum
Hvað gerir sólin þegar hún sest á kvöldin?
Háttar litlu geislana
oní himinsængina
og fyrir stóru gluggana
hún dregur stjörnutjöldin,
það gerir sólin á kvöldin.
Hvað gerir tunglið þegar það tekur völdin?
Hristir silfurhattinn sinn,
svo hrynur úr´onum draumurinn
og sáldrast yfir koll og kinn
er sefur barna fjöldinn,
það gerir tunglið á kvöldin.
|
Í leikskóla er gaman
Í leikskóla er gaman,
þar leika allir saman.
Leika úti og inni
og allir eru með.
Hnoða leir og lita,
þið ættuð bara að vita
hvað allir eru duglegir
í leikskólanum hér.
|
Í rigningu ég syng
(lag: I’m singing in the rain)
Í rigningu ég syng,
í rigningu ég syng.
Það er stórkostlegt veður,
mér líður svo vel!
Armar fram og armar að.
Tjutti tja, tjutti tja, tjutti
tja tja!
(Lagið endurtekið og lið 2 bætt við,
síðan lið 3 o.s.frv.
2. Beygja hné
3. Rassinn út
4. Inn með tær
5. Hakan upp
6. Út með tungu)
|
| |
|
|
|
|