|
|
Söngtextar
[
A - E ] [ F - J ] [ K - O ]
[ P - T ] [ U - Ö ] [
Jólalög ]
|
A
og B
A og B, spott og spé,
grísinn galar uppi´í tré.
Lítil mús til okkar fús
kom og byggði hús.
Lamb í baði, borðar súkkulaði,
hundur jarmar, galar grísinn
hátt!
A og B, spott og spé,
grísinn galar upp´í tré.
Hróp og köll um víðan völl,
þá er sagan öll.
Allur matur
Allur matur á að fara
upp í munn og ofan´í maga.
Heyrið það, heyrið það!
Svo ekki gauli garnirnar.
Á barnadaginn
Sumardaginn
fyrsta
var mér gefin kista,
styttuband og klútur,
mosóttur hrútur.
|
Aravísur
Hann Ari er lítill,
hann er átta ára trítill
með augu mjög falleg og skær.
Hann er bara sætur
jafnvel eins, er hann grætur
og hugljúfur þegar hann hlær.
En spurningum Ara
er ei auðvelt að svara:
Mamma, af hverju er himininn
blár?
Sendir Guð okkur jólin?
Hve gömul er sólin?
Pabbi, hví hafa hundarnir
hár?
Bæði pabba og mömmu
og afa og ömmu
þreytir endalaust spurningasuð:
Hvar er sólin um nætur?
Hví er sykurinn sætur?
Afi, gegndu, hver skapaði
Guð?
Hvar er heimsendir, amma?
Hvað er eilífðin, mamma?
Pabbi, af hverju vex á þér
skegg?
Hví er afi svo feitur?
Hví er eldurinn heitur?
Hví eiga ekki hanarnir egg?
Það þykknar í Ara
ef þau ekki svara
og þá verður hann ekki rór.
Svo heldur en þegja
Þau svara og segja:
“Þú veist það er verðurðu
stór!”
Fyrst hik er á svari
þá hugsar hann Ari
og hallar þá kannski undir
flatt
og litla stund þegir,
að lokum hann segir:
“Þið eigið að segja mér satt!”
|
Amma og daugarnir
Hún
amma mín gamla
lá úti í gljúfri
dimmt var það gljúfur
og draugalegt mjög.
Viðlag:
En amma mín mælti
og út af hún hallaði sér:
,,Ég læt engan svipta mig
svefni í nótt
sama hver draugurinn er".
Kom þar
ein skotta
með skotthúfu ljóta
tönnum hún gnísti
glotti og hló.
Viðlag:
Kom þar
einn Móri
í mórauðri treyju
ofan sitt höfuð
af hálsinum tók.
Viðlag:
Kom þar
einn Boli
kenndur við Þorgeir
æstur í skapi
og Öskraði hátt.
Viðlag:
Loks kom
hann afi
að leita að ömmu
,,æ ertu hér" sagð´ann
,,elskan mín góð"
Viðlag:.
|
|
Bangsi lúrir
Bangsi
lúrir, bangsi lúrir,
bæli sínu í.
Hann er stundum stúrinn,
stirður eftir lúrinn.
Að
hann sofi, að hann sofi
enginn treystir því.
Bjöllukýrin
Týnd
er nú mín besta bjöllukýr,
ber nafnið Rauðagullstjarna.
Pabbi lét mig leita
lýðst mér engin þreyta
amma út mig sendi
otaði að mér vendi.
Komdu nú kusa mín,
komdu,
komdu.
Bátasmiðurinn
Ég negli og saga og smíða
mér bát
og síðan á sjóinn ég sigli með
gát.
Og báturinn vaggar og veltist
um sæ,
ég fjörugum fiskum með færinu
næ.
|
Bíum, bíum, bambaló
Viðlag:
Bíum, bíum, bambaló,
bambaló og dillidillidó.
Vini mínum vagga ég í ró,
en úti bíður andlit á glugga.
Þegar fjöllin fimbulhá
fylla brjóst þitt heitri þrá,
leika skal ég langspil á;
það mun þinn hugann hugga.
Viðlag…
Þegar veður geisa grimm,
grúfir yfir hríðin dimm,
kveiki ég á kertum fimm,
burt flæmi skammdegisskugga.
Bí, bí og blaka
Bí, bí og blaka
álftirnar kvaka.
Ég læt sem ég sofi,
en samt mun ég vaka.
Bíum, bíum bamba,
börnin litlu þamba
fram á fjallakamba
að leita sér lamba.
|
Brunabíll,
köttur og skógarþröstur
Ba, bú, ba, bú, brunabíllinn flautar.
Hvert er hann að fara?
Vatn á eld að sprauta -
tss, tss, tss, tss!
Gerir alla blauta.
Mjá, mjá, mjá, mjá, mjálmar gráa kisa.
Hvert er hún að fara?
Út í skóg að ganga -
uss, uss, uss, uss!
Skógarþröst að fanga.
Bí, bí, bí, bí, skógarþröstur
syngur.
Hvert er hann að fara?
Burt frá kisu flýgur -
víí, víí, víí, víí!
Loftin blá hann smýgur.
|
|
Datt í kolakassann
(nöfn barnanna sett í eyðurnar)
______ datt í kolakassann
hæfadderí, fadderall-all-a.
______ átti að passa ‘ann/’ana
hæfadderí, fadderall-all-a.
Viðlag 1:
Ef hún/hann ______ vissi það
þá yrði ‘ann/’ún alveg steinhissa.
Hæfadderí, hæfaddera,
hæfadderí, fadderall-all-a.
Viðlag 2:
Hvað ert þú að gera hér?
Snáfaðu heldur heim með mér!
Hæfadderí, hæfaddera,
hæfadderí, fadderall-all-a.
Droparnir
:,:"Smell-smell"-"smell-smell"
-segja droparnir við pollinn:,:
Og þeir stinga sér á kaf
og breyta pollinum í haf.
(skella í góminn á "smellinu"!)
|
Ding dong
Ding, dong sagði lítill
grænn froskur einn dag
Ding, dong sagði lítill grænn froskur
Ding, dong sagði lítill grænn froskur einn
dag
og svo líka ding, dong, dongi, dongi, dongi, dongi, dong.
Uhm, eh, sagði lítil
græn eðla einn dag
Uhm, eh, sagði lítil græn eðla
Uhm, eh, sagði lítil græn eðla einn dag
og svo líka uhm, eh, ull, ull, ull, ull, ull.
Kong kong sagði stór
svartur api einn dag
Kong kong sagði stór svartur api
Kong kong sagði stór svartur api einn dag
og svo líka king kong, kone, konge, konge, konge, kong.
Mjá, mjá
sagði lítil grá kisa einn dag
Mjá, mjá sagði lítil grá kisa
Mjá, mjá sagði lítil grá kisa
einn dag
og svo líka mjá, mjá - mjá.
Blúbb, blúbb
sagði lítill blár froskur einn dag
Blúbb, blúbb sagði lítill blár
froskur
Blúbb, blúbb sagði lítill blár
froskur einn dag
og svo líka blúbb, blúbb, blúbb,
blúbb ..... .
í þessu lagi eru gerðar hreyfingar
í samræmi við textann.
Ding dong - Froskurinn blikkar augunum
Um, eh - Eðlan rekur út úr sér tunguna
kinng kong - Apinn slær á brjóst sér
Mjá, mjá - Kisan mjálmar
Blúbb, blúbb - Fiskurinn opnar munninn,
lófar lagðir saman og líkt eftir hreyfingum
sporðs.
|
Dúkkan
hennar Dóru
Dúkkan hennar Dóru var
með sótt, sótt, sótt,
hún hringdi og sagði lækni að
koma fljótt, fljótt, fljótt.
Læknirinn kom þá með sína tösku
og sinn hatt
-hann bankaði á dyrnar: Ra,
ta, ta, ta, tatt!
Hann skoðaði dúkkuna og hristi
sinn haus:
Hún skal í rúmið og ekkert raus!
Hann skrifaði á miða hvaða pillu
hún skyldi fá:
Ég kem aftur á morgun, ef hún
er enn veik þá.
“Druslu-lagið”
Við setjum svissinn á
og við kúplum gírnum frá,
það er startað
og druslan fer í gang!
Drun, drun!!
Það er enginn vandi
að aka bifreið,
ef maður bara kemur
henni í gang.
Drun, drun!!
|
|
Dýrin í Afríku
Hér koma nokkrar vísur,
sem þið viljið máske heyra
um dýrin úti í Afríku
um apana og fleira.
Viðlag:
:,: Hoja, hoja, ha, ha, ha
:,:
um dýrin úti í Afríku
um apana og fleira.
Hæst í trjánum hanga þar
hnetur og bananar.
Þar hefðarapar hafa bú,
þeir heita bavíanar.
Úr pálmablöðum eru gerðar
apabarnavöggur,
en barnfóstran er voða gamall
páfagaukaskröggur.
Og kóngurinn í skóginum
er ljónið sterka og stóra.
Hans kona er ljónadrottningin
- hún étur á við fjóra!
Og hér þarf ekkert slökkvilið
og engan brunahana.
Því fíllinn slekkur allan
eld
með ógnarlöngum rana.
Í trjánum sitja fuglarnir
og syngja allan daginn
og vatnahestur bumbu ber og
bumban - það er maginn!
|
Einn var að smíða
Einn var að smíða ausutetur
annar hjá honum sat.
Þriðji kom og bætti´um betur
hann boraði á hana gat.
Hann boraði á hana eitt,
hann boraði á hana tvö,
hann boraði á hana þrjú og fjögur,
fimm og sex og sjö.
Ein stutt, ein löng
Ein stutt, ein löng, hringur á stöng
og flokkur sem spilaði´og söng.
Köttur og mús og sætt lítið
hús,
sætt lítið hús og köttur og
mús.
Ein stutt…
Penni og gat og fata sem lak,
fata sem lak og penni og gat.
Ein stutt…
Lítill og mjór og feitur og stór,
feitur og stór og lítill og
mjór.
Ein stutt…
|
Ef ég ætti…
Ef ég ætti fiðlu, fiðlu, fiðlu,
ef ég ætti fiðlu þá léki ég
fiðlu, fiðlu, fiðlulag.
Einn, tvo, þrjá, fjóra tíma
á dag.
Ef ég ætti fiðlu, fiðlu, fiðlu,
ef ég ætti fiðlu þá léki ég.
Ef ég ætti trompet, trompet, trompet,
ef ég ætti trompet þá léki ég
tu, tu, tu, tu-trompetlag.
Einn, tvo, þrjá, fjóra tíma á dag.
Ef ég ætti trompet, trompet, trompet,
ef ég ætti trompet þá léki ég.
Ef ég ætti trommu, trommu, trommu,
ef ég ætti trommu þá léki ég
tromm, tromm, tromm, tromm-trommuslag.
Einn, tvo, þrjá, fjóra tíma á dag.
Ef ég ætti trommu, trommu, trommu,
ef ég ætti trommu þá léki ég.
Ég er lítill söngfugl,
söngfugl, söngfugl,
ég er lítill söngfugl og syng
svo vel.
Tra, la, la, la, syng ég lag.
Einn, tvo, þrjá, fjóra tíma
á dag.
Ég er lítill söngfugl, söngfugl,
söngfugl,
ég er lítill söngfugl og syng
svo vel.
|
|
Ég ætla´að syngja
Ég ætla´að syngja,
ég ætla´að syngja.
Ég ætla´að syngja lítið lag.
Hérna eru augun,
hérna eru eyrun,
hérna er "nebbinn"
minn
og munnurinn.
Ég ætla´…
Hérna er bringan,
hérna er naflinn,
hérna er rassinn minn
og búkurinn.
Ég ætla´…
Hérna eru fingurnir,
hérna er höndin,
hérna er olnboginn
og handleggurinn.
Ég ætla´…
Hérna eru tærnar,
hérna er hællinn,
hérna er hnéð á mér
og fótleggurinn hér.
|
Einn og tveir...
Barnalag frá Mexíkó
Einn og tveir og þrír,
fjórir fimm og sex,
sjö og átta´og níu, teljum upp á
tíu,
:,:La, la, la, la, la,
la, la, la la, la,
la, la, la, la, la, la.:,:
Eitt lítið sjónarspil
Ljóð: Jónas Hallgímsson.
Hættu að gráta
hringaná,
heyrðu ræðu mína,
ég skal gefa þér gull í tá,
þó Grímur taki þína.
Hættu að gráta
hringaná,
huggun er það meiri,
égskal gefa ér gull í tá,
þó Grímur taki fleiri.
Hættu að gráta
hringaná,
huggun má það kalla,
ég skal gefa þér gull í tá,
þó Grímur taki þær allar.
|
|
|
|