Að byrja í leikskóla

Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið og foreldra þess. Allt er framandi og ókunnugt, góð aðlögun er því mjög þýðingarmikil fyrir áframhaldandi dvöl barnsins í leikskólanum. Á meðan á aðlögun stendur er mikilvægt að barnið fái að skoða sig um og kynnast hinu nýja umhverfi og að foreldrar kynnist starfinu sem þar fer fram og starfsfólki leikskólans.

Markmið aðlögunar eru:
* Að barnið sýni starfsfólki það traust að leita til þeirra eftir stuðningi og aðstoð
* Að barnið og foreldri öðlist jákvæða mynd af leikskólanum
* Að traust skapist milli foreldra og starfsfólks

Meginreglur eru:
* Að foreldrar komi í viðtal án barns áður en aðlögun hefst
* Að barnið fái góðan tíma til aðlögunar þ.e. að minnsta kosti eina viku.
* Að leikskólakennari skipuleggi aðlögunartímann í samráði við foreldra
.

 
 

Leikskólinn Laugalandi, 851 Hella

s:4876633, leikskolinn@laugaland.is