Um skólann
 
 
Almennt
 
 
Nefndir
 
 
Fundargerðir skólaráðs
 
 
Símanúmer skólans
 
 
Starfsfólk
 
 
Valgreinar
 
 
Skólareglur
 
 
Myndir
 
 
Starfsm.handbók
 
 
Nemendur
 
 
Skóladagatal
    Kennsluáætlanir
 
 
10. bekkur
 
 
9. bekkur
 
 
8. bekkur
 
 
7. bekkur
 
 
6. bekkur
 
 
5. bekkur
 
 
3. bekkur
 
 
4. bekkur
 
 
2. bekkur
 
 
1. bekkur
    Sjálfsmat
 
 
Sjálfsmat 1.hluti
 
 
Sjálfsmat 2.hluti
 
 
Sjálfsmat 4.hluti
 
 
Sjálfsmat 5.hluti - Lokaskýrsla
 
 
Úttekt á sjálfsmatsaðferðum
 
 
Sjálfsmat 3.hluti
 
 
Sjálfsmat 2008 1. hluti
 
 
Mat á stjórnun
 
 
Líðan nemenda og starfsfólks
 
 
Aðbúnaður nemenda og starfsfólks
 
 
Niðurstöður samræmdraprófa - 4.bekkur
 
 
Niðurstöður samræmdraprófa - 7.bekkur
 
 
Niðurstöður samræmdraprófa - 10.bekkur
    Fréttir
 
 
Fréttabréf
 
 
Fréttir frá 1., 2. og 3. bekk
 
 
Fréttir úr skólastarfinu
 
 
Efni frá nemendum
    Tilkynningar
 
 
Viðbragðsáætlun við heimsfaraldri inflúensu
 
 
Innkaupalisti fyrir 1.- 3. bekk
 
 
Innkaupalisti fyrir 4.-5. bekk
 
 
Innkaupalisti fyrir 6. bekk
 
 
Innkaupalisti fyrir 7.- 8. bekk
 
 
Innkaupalisti fyrir 9. bekk
 
 
Innkaupalisti fyrir 10. bekk
    Annað
 
 
Bókasafn
 
 
Sundlaug
 
 
Gamlar Bekkjarmyndir
 
 
Gestabók
 
 
Kennaratal
 
 
E-mail
 
 
Tenglar
 
 
Símaskrá
 
 
Síður nemenda
 

//Á döfinni//

// Fréttir frá Laugalandsskóla//

 

..:: Frá Bókasafninu á ::..

..:: Laugalandi ::..

Opnunartímar bókasafnsins veturinn 2010/2011 breytast lítið eitt frá því í fyrra:
Mánudaga kl.08:50-09:30 og 11:50-12:30
Þriðjudaga kl.09:10-09:50
Miðvikudaga kl.09:10-09:50 og 11:50-12:30
Fimmtudaga kl.11:50-12:45 og 20:00-22:00
Föstudaga kl.08:30-09:30

 

..:: Til foreldra nemenda í ::..

..:: 1. - 10. bekk ::..

..:: Laugalandsskóla ::..

 

Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 7. september

kl. 16:00-17:00. Umsjónarkennarar munu kynna vetrarstarfið þ.e. námsáætlanir, námsefni og helstu áherslur.

Einnig verður kynning í ART og eru foreldrar/forráðamenn nemenda í 6.og 9. bekk sérstaklega velkomnir á kynninguna en aðrir eru einnig velkomnir.

 

..:: Veiðivötn ::..

 

Nemendur 9. bekkjar fara ásamt umsjónarkennara í Veiðivötn 9. september. Veiðivatnaferðin í fyrra var vel heppnuð og ekki líkur á öðru en að hún verði það einnig í ár.

 

..::Þórsmerkurferð::..

 Áætlað er að 7. og 8. bekkur fari í Þórsmörk ásamt Guðna íþróttakennara miðvikudaginn 8. september og komi heim fimmtudaginn 9. september. Nánari upplýsingar fara heim bréflega með nemendum.

 ..:: Við skólaupphaf ::.. 

Fimmtugasta og þriðja starfsár Laugalandsskóla er nú hafið.

Nokkrar starfsmannabreytingar hafa þó orðið. Kolbrún Sigþórsdóttir og Eyrún Jónasdóttir eru komnar aftur til starfa eftir ársleyfi. Sigurlaug Steingríms­dóttir er hætt störfum sem og Stefán Erlendsson sem nú vinnur að doktors­ritgerð sinni. Þá hafa þær María Carmen Magnúsdóttir og Svava Júlía Jónsdóttir hafið störf. María Carmen er umsjónarkennari 9. bekkjar og Svava Júlía er umsjónarkennari 6. bekkjar. Auk þess starfar nú þroskaþjálfi við skólann sem heitir Guðbjörg Vilhjálmsdóttir.

Við þökkum Sigurlaugu og Stefáni kærlega fyrir gott og farsælt samstarf og óskum þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi um leið og við bjóðum nýtt fólk velkomið.

 

 

Nemendur í 1. bekk með umsjónarkennara sínum.

 

 

Það er ekki bara nýtt starfsfólk sem hefur vinnu við skólann því nokkuð mörg ný andlit eru í nemendahópnum. Á myndinni hér fyrir ofan eru þeir fimm nemendur sem hófu skóla­göngu sína í 1. bekk í haust. Þeir eru frá vinstri Aldís Freyja Kristjáns­dóttir, Kristinn Rafn Bjarnason, Sigurbjörg Helga Vignisdóttir, Sigurður Matthías Sigurðarson og Heiðdís Lilja Erlingsdóttir.  Umsjónarkennari þeirra er Hulda Brynjólfs­dóttir. 

Auk þeirra bættust við 7 nýir nemendur í aðra bekki en þeir eru Aron Orn Olason Lotsberg (5. bekk), Jana Lind Ellertsdóttir (5. bekk), Lórenz Sólon Elfar Sig­hvatsson (7.bekk), Mikael Olason Lotsberg (7. bekk), Agnes Helga Jónsdóttir (10. bekk), Erna Lind Oladóttir Lotsberg (10. bekk) og Fannar Geir Sigurgeirsson (10. bekk).  

Þessa nemendur bjóðum við velkomna til starfa, sem og alla aðra nemendur skólans.

Nemendur í Laugalandsskóla eru nú 92 talsins.

 

//Á döfinni//

// Fréttir frá Laugalandsskóla//

:: Samræmd ::..
..:: könnunarpróf ::..

Mánudaginn 20. september er íslenska lögð fyrir 10. bekk. Þriðjudaginn 21. september er enska lögð fyrir 10. bekk Miðvikudaginn 22. september er stærðfræði
lögð fyrir 10. bekk

Fimmtudaginn 23. september er samræmt könnunarpróf í íslensku hjá 4. og 7. bekk (þann dag mæta aðeins þessir tveir bekkir, en aðrir nemendur eru í réttarfríi)

Föstudaginn 24. september er samræmt könnunarpróf í stærðfræði hjá 4. og 7. bekk.

..:: Réttarfrí sama dag og samræmt könnunarpróf ::..

Í ár er réttardagur í Áfangagili sama dag og samræmt könnunarpróf í íslensku er lagt fyrir 4. og 7. bekk.

Réttardagurinn verður fimmtudaginn 23. septem­ber en þann dag mætir 4. og 7. bekkur frá kl 08:30-11:30 en aðrir bekkir eru í fríi.

 

Daginn eftir, föstudaginn 24. september er venjulegur skóladagur.

..::Haustþing kennara::..

Föstudaginn 1. október er haustþing kennara og þá eru nemendur í fríi.

..:: Íþróttatímar ::..

Samkvæmt hefðinni fer íþróttakennslan af stað með sundkennslu og útileikfimi fyrstu vikurnar. Tilkynning er send heim þegar íþrótta­kennslan færist inn í hús. Það er því rétt að minna á að sundfötin eiga að vera í íþróttatöskunni. 

..:: Íþróttaæfingar á Laugalandi ::..

..:: Haust 2010 ::..

 

Eftirtaldar æfingar eru fyrir 4.-10. bekk

Mánudagar kl. 14:30-16:00: Fimleikar

Þriðjudagar kl. 15:00-16:30: Glíma  

Miðvikudagar kl. 15:00-16:30: Knattspyrna/handbolti

Fimmtudagar kl. 15:00-16:00: Blak/badminton/borðtennis

Eftirtaldar æfingar eru fyrir 1.-10. bekk

Þriðjudagar: Frjálsar íþróttir - Yngri hópur (9 ára og yngri) 19:30-20:30

Þriðjudagar: Frjálsar íþróttir - Eldri hópur (10 ára og eldri) 20:30-22:00

 

..:: Sjálfsmat skólans::..

 Á síðasta ári voru gerðar tvær kannanir í tengslum við sjálfsmat skólans. Gerð var könnun á líðan nemenda og starfsfólks og einnig var viðhorf áðurtaldra starfshópa á aðbúnaði kannað. Voru kannanirnar lagðar fyrir nemendur og starfsfólk skólans og síðan unnið úr niðurstöðum þeirra og gefin út skýrsla um þær. Skýrslu þessa má nálgast á heimasíðu skólans, en í stuttu máli má segja að niðurstöður hafi komið vel út og er almenn ánægja í skólasamfélaginu með þessa þætti.                          

Á þessu skólaári verður gerð ný könnun á líðan, en einnig á viðhorfi fólks til kennsluhátta.

 

..::Gönguleiðir UMFÍ::..

„Hættu að hanga og komdu að hjóla, synda eða ganga“

 

UMFÍ býður uppá verkefni fyrir grunnskólanemendur, þar sem þeir merkja gönguleiðir í nágrenni við skólann sinn og skila til UMFÍ.

 
Laugalandsskóli ákvað að vera með í þessu verkefni og hefur Svava Júlía farið í göngu með nemendum sínum í 6. bekk áleiðis að skóginum í Nefsholti. Þau ætla að fara aftur og merkja leiðina nákvæmlega og skila gönguleiðinni inn til UMFÍ. Hér má sjá
 
nokkrar myndir úr fyrstu ferðinni.
 
 
 
 

Ábyrgð: Sigurjón Bjarnason, skólastjóri
 

Copyright 2001 - 2010, Laugalandsskóli í Holtum
Veflausn:
<< Júlí >>
S M Þ M F F L
     0102
03040506070809
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31      
<< 2011 >>

Afmælisbörn dagsins
Ekkert í dag!



Blátt Fjólublátt Rautt Grænt Gult Grátt