|
..:: Frá Bókasafninu á ::..
..:: Laugalandi ::..
Opnunartímar bókasafnsins veturinn 2010/2011 breytast lítið eitt frá því í fyrra: Mánudaga kl.08:50-09:30 og 11:50-12:30 Þriðjudaga kl.09:10-09:50 Miðvikudaga kl.09:10-09:50 og 11:50-12:30 Fimmtudaga kl.11:50-12:45 og 20:00-22:00 Föstudaga kl.08:30-09:30
..:: Til foreldra nemenda í ::..
..:: 1. - 10. bekk ::..
..:: Laugalandsskóla ::..
Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 7. september
kl. 16:00-17:00. Umsjónarkennarar munu kynna vetrarstarfið þ.e. námsáætlanir, námsefni og helstu áherslur.
Einnig verður kynning í ART og eru foreldrar/forráðamenn nemenda í 6.og 9. bekk sérstaklega velkomnir á kynninguna en aðrir eru einnig velkomnir.
..:: Veiðivötn ::..
Nemendur 9. bekkjar fara ásamt umsjónarkennara í Veiðivötn 9. september. Veiðivatnaferðin í fyrra var vel heppnuð og ekki líkur á öðru en að hún verði það einnig í ár.
..::Þórsmerkurferð::..
Áætlað er að 7. og 8. bekkur fari í Þórsmörk ásamt Guðna íþróttakennara miðvikudaginn 8. september og komi heim fimmtudaginn 9. september. Nánari upplýsingar fara heim bréflega með nemendum. |
..:: Við skólaupphaf ::..
Fimmtugasta og þriðja starfsár Laugalandsskóla er nú hafið.
Nokkrar starfsmannabreytingar hafa þó orðið. Kolbrún Sigþórsdóttir og Eyrún Jónasdóttir eru komnar aftur til starfa eftir ársleyfi. Sigurlaug Steingrímsdóttir er hætt störfum sem og Stefán Erlendsson sem nú vinnur að doktorsritgerð sinni. Þá hafa þær María Carmen Magnúsdóttir og Svava Júlía Jónsdóttir hafið störf. María Carmen er umsjónarkennari 9. bekkjar og Svava Júlía er umsjónarkennari 6. bekkjar. Auk þess starfar nú þroskaþjálfi við skólann sem heitir Guðbjörg Vilhjálmsdóttir.
Við þökkum Sigurlaugu og Stefáni kærlega fyrir gott og farsælt samstarf og óskum þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi um leið og við bjóðum nýtt fólk velkomið.
Nemendur í 1. bekk með umsjónarkennara sínum.
Það er ekki bara nýtt starfsfólk sem hefur vinnu við skólann því nokkuð mörg ný andlit eru í nemendahópnum. Á myndinni hér fyrir ofan eru þeir fimm nemendur sem hófu skólagöngu sína í 1. bekk í haust. Þeir eru frá vinstri Aldís Freyja Kristjánsdóttir, Kristinn Rafn Bjarnason, Sigurbjörg Helga Vignisdóttir, Sigurður Matthías Sigurðarson og Heiðdís Lilja Erlingsdóttir. Umsjónarkennari þeirra er Hulda Brynjólfsdóttir.
Auk þeirra bættust við 7 nýir nemendur í aðra bekki en þeir eru Aron Orn Olason Lotsberg (5. bekk), Jana Lind Ellertsdóttir (5. bekk), Lórenz Sólon Elfar Sighvatsson (7.bekk), Mikael Olason Lotsberg (7. bekk), Agnes Helga Jónsdóttir (10. bekk), Erna Lind Oladóttir Lotsberg (10. bekk) og Fannar Geir Sigurgeirsson (10. bekk).
Þessa nemendur bjóðum við velkomna til starfa, sem og alla aðra nemendur skólans.
Nemendur í Laugalandsskóla eru nú 92 talsins.
|