Um skólann
 
 
Almennt
 
 
Nefndir
 
 
Fundargerðir skólaráðs
 
 
Símanúmer skólans
 
 
Starfsfólk
 
 
Valgreinar
 
 
Skólareglur
 
 
Myndir
 
 
Starfsm.handbók
 
 
Nemendur
 
 
Skóladagatal
    Skólanámskrá
 
 
10. bekkur
 
 
9. bekkur
 
 
8. bekkur
 
 
7. bekkur
 
 
6. bekkur
 
 
5. bekkur
 
 
3. bekkur
 
 
4. bekkur
 
 
2. bekkur
 
 
1. bekkur
    Sjálfsmat
 
 
Sjálfsmat 1.hluti
 
 
Sjálfsmat 2.hluti
 
 
Sjálfsmat 4.hluti
 
 
Sjálfsmat 5.hluti - Lokaskýrsla
 
 
Úttekt á sjálfsmatsaðferðum
 
 
Sjálfsmat 3.hluti
 
 
Sjálfsmat 2008 1. hluti
 
 
2009 Líðan nemenda og starfsfólks
 
 
2009 Mat á stjórnun
 
 
2010 Aðbúnaður nemenda og starfsfólks
 
 
2010 Líðan nemenda og starfsfólks
 
 
2011 Samantekt kennsla
 
 
Niðurstöður samræmdraprófa - 4.bekkur
 
 
Niðurstöður samræmdraprófa - 7.bekkur
 
 
Niðurstöður samræmdraprófa - 10.bekkur
    Fréttir
 
 
Fréttabréf
 
 
Fréttir frá 1., 2. og 3. bekk
 
 
Fréttir úr skólastarfinu
 
 
Efni frá nemendum
    Tilkynningar
 
 
Viðbragðsáætlun við heimsfaraldri inflúensu
 
 
Innkaupalisti fyrir 1.- 3. bekk
 
 
Innkaupalisti fyrir 4.-5. bekk
 
 
Innkaupalisti fyrir 6.- 7. bekk
 
 
Innkaupalisti fyrir 8. - 9. bekk
 
 
Innkaupalisti fyrir 10. bekk
    Annað
 
 
Bókasafn
 
 
Sundlaug
 
 
Gamlar Bekkjarmyndir
 
 
Kennaratal
 
 
E-mail
 
 
Tenglar
 
 
Símaskrá
 
 
Síður nemenda
 
 
Skólablaðið Varðan 2012
 

//Á döfinni//

// Fréttir frá Laugalandsskóla//

   

Lokaball 18. maí fyrir   7.- 10. bekk            kl.19:00 - 22:00

..:: Sund ::..
Nú er skólasundið byrjað af fullum krafti. Við viljum eindregið minna nemendur á að taka sundfötin með í skólann og foreldra yngri barna að vera vakandi yfir því að sundpokarnir skili sér úr og í skóla.

  

..:: Vorpróf ::..
Vorprófin byrja mánudaginn 14. maí og þeim lýkur þriðjudaginn 22. maí.

Alla prófdaga er keyrt heim   kl. 13:25 nema þriðjudaginn 22. maí, þá lýkur skóla kl. 12:05.

 

 

..::Uppstigningadagur::..
Uppstigningadagur er fimmtudaginn 17. maí og þann dag er ekki skóli.

 

 

..:: Vorferðalag::..
..::10. bekkjar ::..
Sunnudaginn 20. maí fer 10. bekkur í sína árlegu vorferð. Víða verður farið og margt gert, m.a. klettasig og litboltakeppni. Þau koma aftur heim miðvikudaginn 23. maí.

 

..::Gestakennari::..

Fyrir tveimur árum síðan kom gestakennari frá Norður Dakota og dvaldi hjá okkur í vikutíma. Hann heitir Chuck Suchy og vann að tónlist með nemendum og samdi t.d. nokkur lög með krökkunum í Laugalandsskóla.
Gerð var heimildamynd um ferð hans hingað og störf hans almennt og má sjá brot af myndinni á eftir farandi slóð:

http://www.youtube.com/watch?v=R4c3Z_Bn89Q
Þar inn í miðri mynd má sjá kafla þar sem heimsókn hans í Laugalandsskóla er gerð skil. Heimildamyndin er einnig á bókasafninu til útleigu.

Í ár fengum við gestakennara í fimmta sinn frá Norður Dakota. Allir hafa gestakennararnir verið listamenn og hefur hver þeirra unnið með ólíkt efni. Þeir koma til okkar á tveggja ára fresti, en hitt árið fer íslenskur listamaður til Norður Dakota og vinnur með skólabörnum þar.

Í ár var það Wayne Gudmundson  sem kom en hann er ljósmyndari en vinnur einnig sem framhaldsskólakennari. Wayne á eins og nafnið gefur til kynna íslenskar rætur en forfeður Waynes fóru yfir hafið frá Barkarstöðum í Fljótshlíð og því finnst okkur við eiga sérstaklega mikið í honum.

Heimildamynd um Wayne sem gerð var fyrir nokkrum árum er nú líka á bókasafninu til útleigu.

Wayne var hjá okkur í viku og kenndi ljósmyndun og vann með nemendum okkar að undirbúningi sýningar á verkum þeirra. Nemendurnir lærðu bæði tæknileg atriði tengd ljósmynd sem og fagurfræðina. Ljósmyndasýningin var þann 20. apríl og sáu margir sér fært að mæta og skoða afrakstur vikunnar. Á sýningunni mátti einnig sjá myndir frá börnum úr Cavalier grunnskólanum í Norður Dakota. Myndirnar frá báðum skólunum fara svo til Bandaríkjanna þar sem þær verða sýndar.

Hér eru nokkrar góðar myndir frá þessari viku sem og sýningunni sjálfri. Fleiri myndir af ljósmyndasýningunni má nálgast hér.

 

 

 

 

..:: Árshátíð Laugalandsskóla ::..

Árshátíð skólans var þann 16. apríl síðastliðinn og fór vel fram. Allir bekkirnir fluttu frumsamin leikrit sem var sérstaklega skemmtilegt. Þau voru fjölbreytt og tókust með ágætum Þá söng tónlistarvalið nokkur lög og leikslistarvalið flutti stórt leikrit sem þau hafa unnið að í vetur. Myndirnar hér fyrir neðan segja meira en nokkur orð. Fleiri myndir frá árshátíðinni má nálgast hér.

1. 2. og 3. bekkur flytja leikritið Bíllinn.

 

 4. og 5. bekkur fluttu leikritið Mannkynssaga

 

  6. og 7. bekkur fluttu leikritið Fjarstýringin

 

 8. og 9. bekkur fluttu leikritið Mjallhvít og dvergarnir sjö

 

 Leiklistarvalið flutti leikritið Íslendingasögurnar í nútíma

 

 Söngvalið flutti lögnin Over the rainbow, I’m no good, Sweet Dreams og Higher and Higher.  

//Á döfinni//

// Fréttir frá Laugalandsskóla//

 

 

 

..:: Vordagur ::..

Miðvikudaginn 23. maí verður vori fagnað í skólanum. Þá spreyta nemendur í 4. - 9. bekk sig á skemmtilegum stöðvum sem settar eru upp bæði inni í skólanum og úti. Þar má nefna borðtennis, skák, kubb, fótbolta og ratleik.
Nemendur í 1.- 3. bekk eiga skemmtilegan dag með umsjónarkennara sínum. Skólabílarnir aka svo heim kl.14:20.

 

 

 

 

 

 ..:: Umhverfisdagur ::..

 Fimmtudaginn 24. maí verður umhverfisdagur hjá 5.-9. bekk, frá kl. 8:30 til 12:30.
Þann dag verða nemendur í  1. - 4. bekk ekki í skólanum. 

Þá gróðursetjum við, hreinsum beð, þrífum glugga og berum á timbur svo eitthvað sé nefnt. Í hádeginu verður svo venju samkvæmt grillveisla. Nauðsynlegt er að nemendur komi í vinnufötum sem henta fyrir ofangreind verkefni. 

 

 

 

 

 

 

..:: Skólalok ::..

Föstudaginn 25. maí kl. 20:30 verða skólaslit Laugalandsskóla. Sýning á verkum nemenda verður í skólanum frá kl. 20:00.

 

 

 

..:: Stóra upplestrarkeppninni ::..

 Fyrsta lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Suðurlandi af þremur fór fram í félagsheimilinu Leikskálum í Vík í Mýrdal miðvikudaginn 7. mars kl. 14:00 – 16:00. Þar kepptu 7. bekkjar nemendur úr 6 skólum: Víkurskóla, Kirkjubæjarskóla, Hvolsskóla, Grunnskóla Vestmannaeyja, Grunnskólanum á Hellu og Laugalandsskóla. 

Keppnin fór fram í þremur hlutum. Fyrst lásu keppendur hluta úr sögu Kristínar Helgu Gunnarsdóttur; Draugaslóð, næst völdu þau úr 10 ljóðum Gyrðis Elíassonar og fluttu það og loks lásu þau ljóð að eigin vali. 

Dagskráin var krydduð með alls kyns öðrum listviðburðum. Séra Haraldur M. Kristjánsson flutti ávarp, nemendur úr Víkurskóla fluttu tónlist og vinningshafar frá fyrra ári, þeir Ómar Högni Guðmarsson og Sigurður Smári Davíðsson kynntu höfunda keppninnar. Dómnefnd skipuðu þau Jón Hjartarson leikari og rithöfundur sem var formaður dómnefndar, Þorsteinn M. Kristinsson, Jón Özur Snorrason frá FSu og Hrefna Sigurjónsdóttir.

Fyrir hönd Laugalandsskóla fóru þær Guðbjörg Viðja Antonsdóttir og Halla Rún Erlingsdóttir og stóðu þær sig báðar afskaplega vel. Keppnin var hörð og margir góðir lesarar fóru í ræðupúltið en úrslitin urðu þau að í 3. sæti var Dagur Ágústsson úr Hvolsskóla, í 2. sæti var Bjarnveig Björk Birkisdóttir úr Grunnskólanum á Hellu og sigurvegari var Guðbjörg Viðja Antonsdóttir úr Laugalandsskóla.

Þetta er í tíunda skipti í röð sem nemandi úr Laugalandsskóla vinnur þessa lokahátíð og er það stórkostlegur árangur. Guðbjörg Viðja var síðan dregin út úr hópi allra sigurvegara á landsvísu og las sérvalið ljóð sitt í Ríkisútvarpinu á sumardaginn fyrsta. Útsendinguna má nálgast á vef RÚV undir heitinu Stóra upplestrarkeppnin.

 

..:: 10. bekkur sem kveður ::..

Brátt útskrifast enn einn hópurinn frá Laugalandsskóla. Síðastliðin ár hefur ferðasjóður greitt fyrir peysur sem nemendur í 10. bekk fá til eignar. Nafn og merki skólans er framan á en aftan á er hver peysa sérmerkt viðkomandi nemanda. Þeir 11 nemendur sem brátt ljúka nú námi sínu hér við skólann eru hér á myndinni hægra megin í peysunum sínum. Þau eru frá efri röð vinstra megin Sunneva Eik Hjaltested, Eyrún Rós Þorsteinsdóttir, Steinunn Birna Jónsdóttir, Guðrún Heiða Bjarnadóttir, Kristjana Rós Kristjánsdóttir, mið röð frá vinstri: Sebastian Valur Arvidsson, Guðlaugur Ingi Þórðarson, Ólafur Logi Guðmundsson, Gústaf Ásgeir Hinriksson, Neðsta röð f. v.: Elísabet María Björnsdóttir og Helga Sunna Sigurjónsdóttir.

 

Við kveðjum þennan góða hóp með stolti og þökkum fyrir samveruna undanfarin ár um leið og við óskum þeim velfarnaðar í lífinu.
Til gamans látum við fylgja með mynd af bekknum þegar þau hófu skólagöngu sína hér í 1. bekk. En eins og gengur og gerist hafa sumir farið og aðrir bæst við.

 

..:: Starfendarannsóknir ::..

Undanfarin tvö ár hafa nokkrir kennarar í Laugalandsskóla tekið þátt í starfendarannsókn samhliða kennslu sinni. Kveikjan að þessu var mastersritgerðin Rýnt í störfin sem Kolbrún Sigþórsdóttir aðstoðarskólastjóri skrifaði er hún lauk M.ed. gráðu frá HÍ í stjórnunarfræðum vorið 2010.

Skilgreining á orðinu starfendarannsókn getur verið löng og flókin en þó má stytta það með því að segja að þeir sem stunda starfendarannsóknir eru að skoða eigið starf með það fyrir augum að skilja það betur og leitast við að þróa það til betri vegar.

Í þeim starfendarannsóknum sem fram hafa farið hér í Laugalandsskóla hafa kennarar og stjórnendur unnið saman tveir og tveir. Í fyrstu er lagt upp með hvað skuli skoðað sérstaklega og búin er til spurning út frá viðfangsefninu þ.e. ein spurning fyrir hvern kennara. Þessi spurning verður síðan höfð að leiðarljósi í starfendarannsókninni. Þegar búið er að setja fram spurninguna tryggja þátttakendur gagnkvæman trúnað og heita því að veita uppbyggjandi gagnrýni og vilja til að taka á móti gagnrýni á jákvæðan hátt. Að því loknu eru fundnir tímar þar sem innlit fer fram. Í okkar tilfelli hafa þetta verið tvær kennslustundir á viku. Ein kennslustund á viku þar sem A situr inni í kennslustund hjá B og ein kennslustund þar sem B situr inni í kennslustund hjá A. Síðan er fundinn tími í stundatöflunni þar sem báðir aðilar hittast og fara yfir athugasemdir hvor hjá öðrum.

Þeir sem tekið hafa þátt í starfendarannsóknum á einn eða annan hátt eru allir sammála því að vinna sem þessi eflir starfsfólk skólans faglega og stofnunina sem heild og ýtir þannig undir að nemendur fái bestu kennslu sem hægt er að fá.

Þeir sem vilja fræðast meira um starfendarannsóknir geta nálgast upplýsingar á Veraldarvefnum því að mikið hefur verið skrifað um þessa rannsóknaraðferð undanfarin ár og margir skólar eru farnir að setja þessa vinnu inn í skólastarfið. Einnig má nálgast ritgerðina Rýnt í störfin á bókasafni skólans.

 

..:: Glímukeppni á Ísafirði ::..

Grunnskólamót Íslands í glímu var haldið á Ísafirði þann 14. apríl. Frá Laugalandi fóru fjórir keppendur sem stóðu sig mjög vel. Þeir sem keppt hafa á grunnskólamóti Suðurlands og staðið sig vel, vinna sér þátttökurétt á þessu móti. Smári Valur Guðmarsson hélt uppteknum hætti og sigraði í 6. bekk. Annika Rut Arnarsdóttir og Eiður Helgi Benediktsson lentu í þriðja sæti í 7. bekk og Guðni Elvar Björnsson keppti í 8. bekk og lenti í fjórða sæti.

Einnig var sömu helgi haldin sveitaglíma Íslands þar sem keppt er í liðum og sigraði HSK í flokki 11-12 ára drengja með Smára Val í fararbroddi og Eiður Helgi og Guðni Elvar voru í sigurliðið HSK í flokki 12-13 ára.

Sannarlega góður árangur hjá krökkunum okkar sem tryggja glímunni sess í íþróttalífi skólans.

Ábyrgð: Sigurjón Bjarnason, skólastjóri
 

Copyright 2001 - 2012, Laugalandsskóli í Holtum
Veflausn:
<< Maí >>
S M Þ M F F L
  0102030405
06070809101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  
       
<< 2012 >>

Afmælisbörn dagsins
Ekkert í dag!



Blátt Fjólublátt Rautt Grænt Gult Grátt